<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-24T14:07:45" skst="SDG" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-24 14:09:09 -->

  <ns:umsýsla fundur="11" lgþ="158" tími="2026-09-24T14:07:45">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="þs" nr="59">
      <ns:málsheiti>svör ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Það vekur nokkra furðu mína að hæstv. forseti skuli
    hér áðan hafa gert smávægilegar athugasemdir við hvernig bæri að ávarpa
    þingmenn og slíkt en hafi engar áhyggjur af því eða geri engar
    athugasemdir við það að hæstv. menntamálaráðherra skuli hér víkja sér
    undan og ekki bara það, snúa út úr spurningum og henda ásökunum á aðra
    þegar fyrir liggur að hæstv. ráðherra hefur farið með rangt mál. Í
    samskiptum við hv. þm. Guðmund Inga Kristinsson fyrir afsögn hans sem
    ráðherra kom fram að það væri ákvörðun valkyrjanna svokölluðu að hann
    skyldi fara. „Þessi ákvörðun er eingöngu valkyrjanna“, var sent á hv.
    þingmann og svo var það undirstrikað með því að árétta að þó að þessi
    ákvörðun hafi verið tekin vonist menn til að hann fari ekki úr flokknum.
    <ns:bjalla/> <!-- https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-09-24-gudmundi-inga-settir-afarkostir-i-skilabodum-afsogn-eda-strid-487853--></ns:mgr>

    <ns:mgr>Hæstv. menntamálaráðherra hefur hér komist upp með það að víkja
    sér undan spurningum <ns:bjalla/> um það hvort og raunar á hvaða hátt
    hæstv. ráðherra <ns:bjalla/> fór með rangt mál og mér þykir það hlutverk
    hæstv. forseta Alþingis að benda á það.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>