<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-24T14:09:25" skst="GÞÞ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-24 14:10:44 -->

  <ns:umsýsla fundur="11" lgþ="158" tími="2026-09-24T14:09:25">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="þs" nr="59">
      <ns:málsheiti>svör ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Það er svona spurning hvað virðulegur forseti
    getur gert í því að við erum hér með ríkisstjórn þar sem hæstv. ráðherrar
    gera hvað þeir geta til að afvegaleiða almenning í landinu. Hér kom hæstv.
    umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og fór að tala um að það væri búið
    að setja 10.000 milljónir í bílaleigur út af loftslagsaðgerðum. Bara tóm
    þvæla. Svo kemur hæstv. menntamálaráðherra og eignar sér auðvitað mestu
    kjarabót sem öryrkjar hafa fengið en hún greiddi atkvæði gegn því máli:
    18.000 milljónir til öryrkja. Og til að bíta höfuðið af skömminni þá
    stendur hérna hæstv. menntamálaráðherra og talar þvert gegn því sem liggur
    fyrir og allir geta séð sem hafa aðgang að alnetinu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég bara spyr: Getur virðulegur forseti gert
    eitthvað í þessu? <ns:bjalla/> Því að því fylgir ábyrgð að vera ráðherra
    <ns:bjalla/> og það er alvarlegt þegar ráðherrar, aftur og aftur,
    <ns:bjalla/> afvegaleiða umræðuna.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>