<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-24T14:10:55" skst="GAS" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-24 14:11:43 -->

  <ns:umsýsla fundur="11" lgþ="158" tími="2026-09-24T14:10:55">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="þs" nr="59">
      <ns:málsheiti>svör ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég verð að viðurkenna að mér finnst
    stjórnarandstaðan leggjast ansi lágt í þessum óundirbúna fyrirspurnatíma,
    er hér trekk í trekk að koma upp og velta sér upp úr einkaskilaboðum milli
    aðstoðarmanns fyrrverandi ráðherra. Jú, gott og vel, það er pólitík í
    þessu eins og öðru og fólk vill ræða þetta en ég verð að koma hér upp
    undir fundarstjórn forseta og setja spurningarmerki við það að það sé ekki
    stigið inn í þegar hér er verið að nafngreina einstakling úti í bæ og láta
    ráðherrann svara fyrir einkaskilaboð sem hann er ekki aðili að. Ég geri
    mér alveg grein fyrir því að hér birtast einhver skilaboð í fjölmiðlum en
    mér þykir ekki eðlilegt að þingmenn komi hér upp í ræðustól Alþingis og
    séu að nafngreina þessa fyrrverandi starfsmenn ríkisins og láta ráðherra
    svara fyrir hennar orð. Mér þykir það ómálefnalegt og eitthvað sem forseti
    ætti að stíga inn í.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>