<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-24T14:12:59" skst="ÞorgS" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-24 14:14:06 -->

  <ns:umsýsla fundur="11" lgþ="158" tími="2026-09-24T14:12:59">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="þs" nr="59">
      <ns:málsheiti>svör ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég ætla að hlýða fyrirmælum forseta og gera
    athugasemdir við fundarstjórn forseta. Það er að sjálfsögðu hlutverk
    forseta að benda á þegar ræðumenn fara yfir tíma, ávarpa ekki forseta eða
    ávarpa ekki þingmenn með fullu nafni. Það er líka hlutverk forseta að gera
    kröfu um það eftir sinni bestu getu að hér sé farið með satt og rétt mál
    og að ráðherrar sem sitja fyrir svörum komist ekki upp með að víkja sér
    undan því.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Annað sem mig langar að nefna vegna ummæla hv. þm. Guðmundar Ara
    Sigurjónssonar er að við erum ekki hér, frú forseti, að tala um bara
    einhverja einstaklinga úti í bæ. Við erum að tala um fyrrverandi
    aðstoðarmann og það er heldur ekki rétt hjá hv. þingmanni að við séum hér
    að tala um einkaskilaboð, einkagögn. Þau eru það ekki lengur, þau eru í
    fréttunum, þau eru í Ríkisútvarpi allra landsmanna þannig að það er í
    hæsta máta eðlilegt, frú forseti, <ns:bjalla/> að vitnað sé til slíkra
    gagna.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>