<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-24T14:14:15" skst="GHaf" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-24 14:15:38 -->

  <ns:umsýsla fundur="11" lgþ="158" tími="2026-09-24T14:14:15">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="þs" nr="59">
      <ns:málsheiti>svör ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Við erum búin að upplifa það í allri tíð
    þessarar ríkisstjórnar að hér er spurningum aldrei svarað. Þeim er ekki
    svarað í óundirbúnum fyrirspurnum og það var engin nýbreytni hér í dag því
    að við erum búin að spyrja hæstv. mennta- og barnamálaráðherra hér ítrekað
    svara og höfum ekki fengið nein svör. <!--Hún segir „ og ekki fengið neinar spurningar“. og hún segir líka þvingu, 
sem er smá óvenjulegt en tækt svo ég læt það standa / ii--> Ég vil beina því
    til frú forseta að sjá til þess að hér svari ráðherrann spurningum. Því er
    nefnilega enn þá ósvarað hvort þetta mál hafi verið eitthvað sem
    fyrrverandi aðstoðarmaður fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra hafi
    bara tekið upp hjá sjálfum sér. Það finnst mér alvarlegt mál ef
    aðstoðarmenn ráðherra hér geta rekið ráðherra eða sett á þá þannig þvingu
    og hótað hér stríði. Ég ætla bara að óska eftir því að forseti stígi hér
    inn og við fáum sannleikann í því máli. <ns:bjalla/> Ef það er raunin þá
    er Alþingi Íslendinga komið á hættulegar brautir ef hér er fólk,
    aðstoðarmenn, sem getur <ns:bjalla/> beitt hér ráðherra þannig þvingunum,
    hótað stríði, ef þeir segja ekki af sér og svo tekur eiginmaður
    <ns:bjalla/> viðkomandi við embættinu fjórum dögum síðar.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>