<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-24T14:15:54" skst="GÞÞ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-24 14:17:21 -->

  <ns:umsýsla fundur="11" lgþ="158" tími="2026-09-24T14:15:54">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="þs" nr="59">
      <ns:málsheiti>svör ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Þetta hefur verið nokkuð áhugaverð umræða hér
    undir fundarstjórn forseta og ég hvet virðulegan forseta til þess að skoða
    sérstaklega það sem þingflokksformaður Samfylkingar sagði í forsætisnefnd.
    Hér er sagt að það sé komið í fréttir Ríkisútvarpsins að það komi þinginu
    ekki við. Það sem er staðhæft með gögnum, sem, eftir því sem ég best veit,
    eru ekki fölsuð, er að valkyrjurnar, forystumenn í ríkisstjórn, hafi tekið
    ákvörðun um það að ráðherra á sjúkrabeði verði að hætta. Og hér kemur
    forystumaður Samfylkingarinnar fram og segir: Þetta er algerlega fyrir
    neðan allar hellur að þetta sé rætt hérna. Þetta er bara
    einkamál.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég legg það til að forsætisnefnd fari yfir
    þetta því að ef það er þannig að almenningur eigi ekki rétt á þessum
    upplýsingum og svörum frá hæstv. ráðherrum þá þurfum við aldeilis að
    hreinsa til hérna. <ns:bjalla/> Þá getum við ekki verið að ræða öll þessi
    mál sem ég held að flestir telji að eigi erindi til almennings.
    <ns:bjalla/> Ég held að almenningur sé að velta fyrir sér: Af hverju
    <ns:bjalla/> eru forystumenn í ríkisstjórninni, valkyrjurnar, að taka þá
    ákvörðun að ráðherra á sjúkrabeði fái ekki lengur að vera
    ráðherra?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>