<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-24T14:17:31" skst="SDG" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-24 14:18:38 -->

  <ns:umsýsla fundur="11" lgþ="158" tími="2026-09-24T14:17:31">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="þs" nr="59">
      <ns:málsheiti>svör ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Hæstv. forseti vill að við ræðum fundarstjórn forseta undir þessum
    lið, eðlilega. En það vakti athygli mína þegar hv. þm. Guðmundur Ari
    Sigurjónsson kom hér upp og hélt því fram að það væri óviðeigandi að tala
    um ákveðna hluti sem eru í fréttum hérna á þinginu. Þá sá hæstv. forseti
    ekki ástæðu til að gera athugasemd við það. Það liggur fyrir að hv. þm.
    Guðmundur Ingi Kristinsson birti það sem áður voru einkaskilaboð
    tilneyddur. Hann var neyddur til þess, ekki síst af hæstv.
    menntamálaráðherra sem hafði farið með rangt mál um aðdraganda þess að hv.
    þingmaður var neyddur til að segja af sér sem ráðherra. Þetta hlýtur að
    varða þingið, frú forseti, og hæstv. forseti hlýtur að taka tillit til
    þess í því hvernig fundum er stjórnað og jafnvel að gera ráð fyrir að
    þetta verði rætt í hæstv. forsætisnefnd eða öðrum nefndum.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>