<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-24T14:18:47" skst="SMás" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-24 14:20:08 -->

  <ns:umsýsla fundur="11" lgþ="158" tími="2026-09-24T14:18:47">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="þs" nr="59">
      <ns:málsheiti>svör ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Hér undir liðnum fundarstjórn forseta komu fram
    ummæli af hálfu hv. þingflokksformanns Samfylkingarinnar þar sem látið var
    að því liggja að það væri eitthvað óeðlilegt við það að menn væru að ræða
    hér efni skilaboða sem komin eru fram í fjölmiðlum, fleiri en einum, nær
    öllum helstu fjölmiðlum, sem eru vissulega frá fyrrverandi aðstoðarmanni
    þáverandi hæstv. menntamálaráðherra. Ég vil einnig vekja athygli á því að
    ástæða þess að þau eru rædd hér sem viðeigandi efni í sambandi við hæstv.
    ríkisstjórn er að það er ljóst af þessum skilaboðum að þessi aðstoðarmaður
    virðist vera að flytja ráðherranum skilaboð ríkisstjórnarinnar. Það er
    ekki einhver skoðun eða einkaskoðun aðstoðarmannsins sem kemur þarna fram
    heldur er verið að flytja ráðherranum skilaboð frá ríkisstjórninni. Þannig
    hljóma þessi skilaboð. Ef menn geta borið það til baka þá er það
    sjálfsagt, en þannig kemur þetta okkur fyrir sjónir. Og eins og hv. þm.
    Sigmundur Davíð Gunnlaugsson bendir á þá er það eftir að hæstv.
    menntamálaráðherra hefur farið með rangfærslur í fjölmiðlum um efni
    þessara samskipta <ns:bjalla/> sem hv. þingmaður sér sig tilneyddan til að
    birta þessi samskipti. Þannig að ef einhver hérna er rangstæður
    <ns:bjalla/> þá er það hæstv. ríkisstjórn og hæstv. ríkisstjórnarflokkar
    en ekki þeir sem reyna að komast til botns í þessum vanda.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>