<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-24T14:20:18" skst="NMG" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-24 14:21:26 -->

  <ns:umsýsla fundur="11" lgþ="158" tími="2026-09-24T14:20:18">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="þs" nr="59">
      <ns:málsheiti>svör ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég vil vekja athygli forseta á því að aftur og aftur
    fáum við engin svör, hvort sem við spyrjum um það hvort við séum
    umsóknarríki um aðild að Evrópusambandinu eða ekki. Þrátt fyrir sirka sex
    tilraunir, frú forseti, fengum við ekki svör. Núna rétt í þessu kom fram
    að hæstv. forsætisráðherra, Kristrún Frostadóttir, sat með hæstv.
    ráðherra, Ingu Sæland, í tvær klukkustundir með hv. þm. Guðmundi Inga. Og
    hvað gerist? Hann segir af sér. Hæstv. ráðherrar, Kristrún Frostadóttir,
    Inga Sæland og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sátu líka í tvær
    klukkustundir með hv. þm. Ásthildi Lóu. Og hvað gerist? Hún ákveður að
    segja af sér. Ráðuneytisstjóri hjá hæstv. forsætisráðherra situr yfir
    ríkislögreglustjóra, mögulega í tvær klukkustundir, og hvað gerist? Hann
    ákveður að segja af sér. Af hverju, frú forseti, er verið að afvegaleiða
    umræðuna í stað þess að taka ábyrgð á eigin ákvörðunum?</ns:mgr>

    <!--set ekki inn föðurnöfnin, ÞSv áminnir í næstu ræðu/st.-->
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>