<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-24T14:21:52" skst="GHaf" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-24 14:23:12 -->

  <ns:umsýsla fundur="11" lgþ="158" tími="2026-09-24T14:21:52">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="þs" nr="59">
      <ns:málsheiti>svör ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég vil ítreka óskir mínar til forseta um að
    forseti stigi hér fram og ræði við ráðherra og þingmenn um að þeir upplýsi
    og svari spurningum sem til þeirra er beint. Því er enn ósvarað hvernig
    liggur í þessu máli og ég ætla bara að minna á það að við erum ekki að
    spyrja um upplifanir. Ég hef engan áhuga á að vita eitthvað um upplifanir
    hæstv. mennta- og barnamálaráðherra, bara engan. Ég vil heyra sannleikann
    og hæstv. ráðherra er algjörlega fyrirmunað að segja sannleikann hér í
    ræðustóli Alþingis okkar Íslendinga. Finnst hæstv. ráðherra í alvörunni
    ekkert skrýtið að sagt sé að fyrrum aðstoðarmaður fyrrum barna- og
    menntamálaráðherra og valkyrjurnar hafi tekið þessa ákvörðun? <ns:bjalla/>
    Og hér kemur hæstv. ráðherra og talar um að taka utan um hæstv. ráðherra,
    <ns:bjalla/> að hún hafi gert það á sjúkrabeði hans. Þetta hefur verið
    kalt faðmlag, er ég hrædd um.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>