<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-24T14:23:23" skst="SVS" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-24 14:24:56 -->

  <ns:umsýsla fundur="11" lgþ="158" tími="2026-09-24T14:23:23">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="þs" nr="59">
      <ns:málsheiti>svör ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég held að það sé mikilvægt að menn komi hér
    hreint og beint fram í þessari umræðu og í þessu púlti eins og þessi
    umræða hefur þróast hér. Verð ég að segja að mér finnst í raun og veru þá
    tvær leiðir koma til greina eða tvær útfærslur: Það er annaðhvort að sú
    nálgun eða sá málflutningur sem hv. þm. Guðmundur Ingi Kristinsson hefur
    lagt hér fram og við sáum birtast í blöðunum í morgun er réttur og þá er
    hæstv. ráðherra að Inga Sæland að fara með rangt mál. Það er alvarlegt. Ef
    ekki, þá er það hin sviðsmyndin sem blasir við: Ef valkyrjurnar og hæstv.
    ráðherra Inga Sæland höfðu ekkert með þessi skilaboð <ns:bjalla/> að gera
    og koma algerlega frá aðstoðarmanninum sjálfum, þá er það náttúrlega enn
    þá dekkri mynd, virðulegur forseti, <ns:bjalla/> ef aðstoðarmaðurinn
    sjálfur hefur tekið það upp á sitt eindæmi að senda <ns:bjalla/> hæstv.
    ráðherra þá skilaboð í nafni ríkisstjórnar án þess að vera með umboð til
    þess. <ns:bjalla/> Það er ekki síður alvarlegt. Við þessu þarf þingið að
    fá svör.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>