<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-24T14:25:38" skst="JPZ" tegflm="L" tegr="F" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-24 14:30:45 -->

  <ns:umsýsla fundur="11" lgþ="158" tími="2026-09-24T14:25:38">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="um" nr="56">
      <ns:málsheiti>Staða barna með íslensku sem annað mál í leik- og
      grunnskólum</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Virðulegi forseti. Ég vil þakka fyrir þessa
    umræðu og mig langar að ræða stöðu barna af erlendum uppruna í íslenska
    skólakerfinu. Í PISA 2025 náðu aðeins 28% nemenda af erlendum uppruna
    grunnfærni í lesskilningi. Hér ræðir um fyrstu og aðra kynslóð barna með
    innflytjendabakgrunn. Það þýðir að 72% náðu ekki grunnfærni. Við erum að
    tala um lægstu viðmiðin, þrír af hverjum fjórum. Það er pínu dapurlegt að
    hér í pontu séum við alltaf að ræða um grunnfærni en ekki afburðafærni, að
    við séum á þeim stað með lesskilning í landinu að grunnfærni sé
    útgangspunkturinn í meira og minna öllu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En við getum ekki notað fjölgun barna sem eru af erlendu bergi
    brotin sem afsökun fyrir almennu PISA-hruni Íslands. OECD hefur skoðað
    þetta sérstaklega. Fjölgun þessara barna hefur vissulega einhver áhrif á
    landsmeðaltalið. En svo ég vitni í OECD, frú forseti, þá skýrir breytt
    samsetning nemendahópsins aðeins fáein PISA-stig og það er ekki meginorsök
    þeirra breytinga sem við sjáum á svokölluðu hruni. Þessi börn eru ekki
    orsök PISA-vandans en PISA sýnir að við erum ekki nálægt því að ná vel
    utan um þau.</ns:mgr>

    <!--finn ekki tilvitnun svo ég sný í óbeina tilv./st.-->

    <ns:mgr>Þessi hópur barna er fjölbreyttur. Við getum verið með barn sem
    kemur hingað 14 ára og tekur prófið ári seinnaeða börn sem fæddust hér og
    ólust upp á Íslandi og á þessu verður að gera greinarmun. Í PISA 2022
    mældust nemendur án innflytjendabakgrunns, íslensk börn, með 441 stig í
    lesskilningi og eru á sama róli og innflytjendur á Norðurlöndunum af
    annarri kynslóð. Íslensk börn, alin upp hér með íslenska foreldra, á sama
    stað, sama róli og börn af annarri kynslóð innflytjenda á Norðurlöndunum.
    Þetta er sláandi. Önnur kynslóð innflytjenda, börn fædd hér á landi af
    erlendum foreldrum og hafa alist upp í íslensku menntakerfi frá því að þau
    fæddust: 378 stig. Það munar á þessum börnum og íslensku börnunum 62
    stigum, sem fyrir fólk sem áttar sig ekki á eru þrjú heil skólaár. Barn
    með erlenda foreldra og elst upp í kerfinu, meðaltalið: Það er með þremur
    skólaárum minna í menntun, í lesskilningi vegna þessa. Og það er þessi
    önnur kynslóð sem veldur mér mestum áhyggjum. Þetta eru börn fædd hér en
    eru samt þremur árum á eftir. Og gleymum því ekki, þremur árum á eftir
    hverjum? Samanburðarhópi sem stendur hræðilega illa, er við botninn í
    PISA.</ns:mgr>

    <!--fæ út 63 stig en hann endurtekur þessa tölu síðar/st.-->

    <ns:mgr>Þetta kallar á markvissar aðgerðir. OECD hefur jafnframt bent á að
    tungumálafærni barna af erlendum uppruna sé ekki metin kerfisbundið í
    íslenska skólakerfinu. Því spyr ég hæstv. ráðherra: Hvaða mælanlegu
    markmið ætlar ráðherra að setja ef aðeins 28% þessara barna eru með
    grunnfærni núna? Hvert á hlutfallið að vera árið 2030? Ef börn fædd af
    erlendum foreldrum eru 62 stigum eða þremur árum á eftir jafnöldrum sínum,
    hversu mikið á þetta bil að hafa minnkað árið 2030?</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mannaflinn. Ráðuneytið hefur sjálft birt niðurstöðu sem það kallar
    kerfislægan veikleika. Aðeins 12% þeirra sem kenna íslensku sem annað
    tungumál hafa sérhæfingu á sviðinu. Hvernig ætlar ráðherra að fjölga
    þessum kennurum og hvert verður tölulegt markmið árið 2030?</ns:mgr>

    <ns:mgr>Loks eru það kennararnir sjálfir. Í sama bekk getur verið barn sem
    talar íslensku reiprennandi, barn sem er fætt hér en talar annað tungumál
    heima og er langt á eftir og svo kannski þriðja barnið sem kom til Íslands
    fyrir nokkrum mánuðum. Samt á kennarinn að mæta öllum þessum þörfum.
    Hvernig ætlar ráðherra að bregðast við því aukna álagi sem kennarar lýsa
    og er raunverulegt? Með sérhæfðum kennurum, með minni hópum, aukinni
    íslenskukennslu, kerfisbundnu tungumálamati eða eftirfylgni? Spyr sá sem
    hér stendur.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Við eigum ekki að benda á börnin. Við eigum að spyrja hvort kerfið
    sé að veita þeim þá íslenskukennslu sem þau eiga rétt á og hvort
    kennararnir hafi fengið réttu og góðu verkfærin og skólarnir mannaflann
    til þess. Ég vil sjá markmið, ég vil sjá mælikvarða og tímasetta áætlun
    svo við getum síðan mælt hvort börnin hafi náð raunverulega betri árangri.
    Við þurfum mælanleg viðmið sem við getum fylgt eftir. Annars eru þetta
    bara orðin tóm.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>