<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="mennta- og barnamrh." frhr="0" id="r2026-09-24T14:30:51" skst="IngS" tegflm="R" tegr="F" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-24 14:36:06 -->

  <ns:umsýsla fundur="11" lgþ="158" tími="2026-09-24T14:30:51">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="um" nr="56">
      <ns:málsheiti>Staða barna með íslensku sem annað mál í leik- og
      grunnskólum</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen hjartanlega fyrir
    að koma með þessa umræðu hér um íslensku sem annað tungumál. Það verður að
    segjast að ég hef verið sammála hv. þm. Jóni Pétri Zimsen í nánast öllum
    þeim áherslum sem hann hefur viljað draga fram hvað lýtur að menntun
    barnanna okkar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Forseti. Við skulum hugsa okkur barn sem situr í skólastofu og
    skilur ekki það sem kennarinn segir. Barnið vill læra. Það vill eignast
    vini og það vill fá að taka þátt. En þegar hin börnin eru að hlæja skilur
    það ekki brandarann. Þegar verkefnið er útskýrt veit það ekki hvar það á
    að byrja. Ekkert barn á að upplifa sig einangrað í skólunum okkar. Ekkert
    okkar má sætta sig við að hæfileikar barns fari forgörðum vegna þess eins
    að við veitum því ekki þann stuðning sem þarfir þess krefjast.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég heimsótti Síðuskóla á Akureyri núna í síðustu viku. Þar sá ég
    metnaðarfullt starf við móttöku og íslenskukennslu nemenda með erlendan
    bakgrunn og frábæran árangur samhliða því. Ég hef verið upplýst um að
    þessi aðferðafræði eigi einnig við um aðra grunnskóla á Akureyri sem og á
    fleiri stöðum í samfélaginu okkar. Því er það verkefni okkar núna að
    styðja alla skóla sem glíma við þær áskoranir sem fylgja kennslu á
    íslensku sem öðru tungumáli. Búseta barns má aldrei ráða möguleikum þess
    til menntunar. Mín sýn er sú að komið verði upp aðstöðu fyrir kennslu í
    íslensku sem öðru tungumáli í öllum skólum sem þjóna börnum sem eru að
    læra íslensku sem annað mál.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Niðurstöður PISA, eins og hv. þingmaður kemur
    hér inn á, eru viðvörun sem okkur ber sannarlega að taka alvarlega. Barn
    sem lærir íslensku sem annað tungumál þarf að læra tungumálið og nota það
    samtímis til þess að læra stærðfræði, til að læra náttúrufræði og allar
    aðrar greinar sem á það er lagt að læra. Það segir sig sjálft að það
    gerist ekki án markvissrar kennslu. Börnin eru ólík. Sum eru nýkomin,
    önnur fædd hér. Sum hafa búið við öryggi, önnur flúið stríð og misst úr
    skólagöngu. Við verðum að mæta hverju barni þar sem það er. Stuðningurinn
    þarf að byrja snemma. Hann þarf að byrja strax í leikskóla og vara eins
    lengi og þörf krefur. Við þurfum einnig að huga að því að tæplega 30%
    grunnskólanema í dag eru með erlendan bakgrunn, 30%, virðulegi
    forseti.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í gegnum þróunarverkefnið MEMM er unnið að betri móttöku, ráðgjöf
    og starfsþróun um allt land. Markmiðið er einfalt. Það er að hver skóli
    hafi þekkingu og verkfæri til að taka vel á móti þessum börnum og að geta
    kennt þeim. Ég mun einnig setja lestur og íslensku í skýran forgang ásamt
    því að styrkja, endurskoða og einfalda aðalnámskrá. Íslenska sem annað
    tungumál fær þar skýran sess, sérhæfða kennslu og námsefni sem hæfir aldri
    og stöðu hvers nemanda. Í næstu fjárlögum er gert ráð fyrir 455 millj. kr.
    viðbótarframlagi til íslenskrar námsgagnaútgáfu og þar munum við mæta
    þörfum þessara barna sem eru að læra íslensku. Við þurfum samfellda
    uppbyggingu námsefnis, ekki stakar bækur af og til. Kennarar eiga ekki að
    sitja kvöld eftir kvöld við eldhúsborðið heima og búa til námsefni sem
    menntakerfið sjálft á að veita þeim. Við þurfum líka að fjölga kennurum
    með sérhæfingu. Frá árinu 2016 hafa aðeins 15 kennarar útskrifast á
    landinu með einhvers konar sérhæfingu í íslensku sem öðru tungumáli. Það
    er víst enn langt í land með að við getum mætt þörfinni en við erum, hv.
    þingmaður, að fara þangað, svo sannarlega.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Samtal við Háskóla Íslands og Háskólann á Akureyri er hins vegar
    hafið. Á morgun mun ég funda með hæstv. ráðherra háskólamála, m.a. um
    þessi mál. Ég mun vinna að fleiri námstækifærum og öflugri starfsþróun
    kennara og við verðum að hafa foreldrana með. Foreldrar sem eru að læra á
    nýtt samfélag þurfa skiljanlegar upplýsingar og greiða leið að
    skólunum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Við eigum ekki að gera börnin að neinum
    sökudólgum vegna álags í skólunum. Við berum ábyrgð á umgjörðinni. Ríki,
    sveitarfélög og stjórnendur þurfa að tryggja kennurum námsefni,
    sérfræðiaðstoð og tíma til kennslu. Fækka þarf óþarfaskráningum og beina
    fjármagni þangað sem þörfin er mest. Við þurfum jafnframt að vita hvernig
    það nýtist. Meta þarf stöðu barna fyrr og fylgja framförum þeirra eftir.
    Upplýsingar og stuðningur mega ekki glatast þegar barn skiptir um skóla
    eða skólastig. Við eigum að grípa inn í áður en barnið missir trúna á
    eigin getu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í vetur legg ég fram endurskoðaða aðgerðaáætlun í menntamálum með
    skýrum markmiðum, ábyrgð, fjármögnun og tímasetningum og árangurinn mun
    verða birtur. Ég ætla að fylgja því eftir að breytingarnar skili sér alla
    leið inn í skólastofuna. Hinn nýi matsferill og nemendagrunnurinn eru
    einnig stórkostleg verkefni fyrir okkur.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Íslenskan opnar dyr að námi, vináttu og
    þátttöku. Okkar skylda er að hjálpa börnunum að opna þær dyr. Á bak við
    hverja tölu er barn sem á drauma, hæfileika og framtíð hér. Þessi börn
    tilheyra samfélaginu okkar. Þau eiga heima hér og þau eiga að finna það á
    hverjum einasta degi.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>