<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-24T14:36:14" skst="VíðR" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-24 14:38:00 -->

  <ns:umsýsla fundur="11" lgþ="158" tími="2026-09-24T14:36:14">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="um" nr="56">
      <ns:málsheiti>Staða barna með íslensku sem annað mál í leik- og grunnskólum</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir að
    taka þetta mikilvæga mál hérna upp og þakka hæstv. mennta- og
    barnamálaráðherra fyrir að taka þátt í umræðunni. Nýjustu niðurstöður PISA
    sem kynntar voru fyrr í þessum mánuði tala sínu máli. Allt of lítill hluti
    nemenda af erlendum uppruna nær grunnhæfni í lesskilningi. Hjá börnum sem
    fæddust erlendis munar verulega á þeim og jafnöldrum þeirra og þessi hópur
    hefur vaxið verulega síðustu ár. Nær öll þessi börn tala annað mál en
    íslensku heima hjá sér.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En þetta er ekki aðeins menntamál. Á Norðurlöndum er tungumálið
    talið hluti af samfélagslegu áfallaþoli. Þegar hættuástand skapast þurfa
    allir íbúar að skilja leiðbeiningar og treysta stofnunum. Barn sem nær
    ekki tökum á íslensku í dag getur orðið jaðarsettur einstaklingur þegar
    kemur að öryggi samfélagsins. Ég hvet ráðherra til að beita sér í að gera
    íslensku sem annað mál að föstum hluta kennaranámsins. Sérhæfðir kennarar
    verða ekki til af sjálfu sér. Ég hvet ráðherra til að hlusta á kennara sem
    finna álagið á eigin skinni, finna álagið af því að starfa í skólastofu
    þar sem þarf að tala jafnvel mörg tungumál til að koma upplýsingum á
    framfæri. Fjármagn þarf nefnilega að fylgja hverju barni sem þarf aukinn
    málstuðning til þess að allir í skólastofunni fái þann stuðning og þá
    þjónustu sem þarf. Hæstv. ráðherra mun hafa stuðning minn í þessu
    verkefni. Þetta er fjárfesting í samfélaginu, þetta er fjárfesting í
    öryggi og þetta er fjárfesting í framtíð þjóðarinnar.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>