<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-24T14:38:07" skst="SDG" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-24 14:40:15 -->

  <ns:umsýsla fundur="11" lgþ="158" tími="2026-09-24T14:38:07">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="um" nr="56">
      <ns:málsheiti>Staða barna með íslensku sem annað mál í leik- og
      grunnskólum</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Hér ræðum við eitt af þeim málum sem hæstv. ráðherrar
    og margir aðrir hv. þingmenn nálgast með því að tala fyrst og fremst
    fallega um hlutina og ræða draumsýn án þess að víkja í miklu að því með
    hvaða hætti eigi að láta hana rætast. Jú, það eru nefndir hlutir eins og
    að það þurfi að fjölga kennurum sem eru sérhæfðir í að kenna krökkum með
    íslensku sem annað tungumál. En það er líka draumsýn. Ísland getur ekki
    verið menntamiðstöð fyrir allan heiminn. Það er ekki og verður aldrei
    raunhæft að kenna á 100 tungumálum í íslenskum grunnskólum. Það hefur
    verið reynt og við sjáum afleiðingarnar, ekki bara fyrir erlendu börnin
    heldur fyrir þau íslensku líka, og hefur tekist hið ótrúlega; að reka hér
    líklega dýrasta grunnskólakerfi í heimi með hinum lakasta árangri þróaðra
    ríkja. Þetta kallar á eitthvað meira en nýja draumsýn og umræðu um það
    hvað það væri fallegt ef hlutirnir yrðu einhvern veginn. Við verðum að
    líta á hvað er raunhæft. Í heiminum eru töluð yfir 7.000 tungumál og þá
    eru ekki taldar með alls konar mállýskur. Getum við kennt á 7.000
    tungumálum? Ég geri ekki ráð fyrir að nokkur haldi því fram. Aðrar þjóðir
    hafa ekki gengið eins langt og Íslendingar í því að reyna hið ómögulega í
    þessu efni. Íslenskir grunnskólar þurfa að vera til þess fallnir að kenna
    íslenskum börnum eins vel og kostur er. Aðrar ráðstafanir er svo hægt að
    gera til hliðar við það en ekki rugla öllu saman og valda því að
    skólakerfið verði vonlaust fyrir alla.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>