<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-24T14:43:00" skst="SIJ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-24 14:45:20 -->

  <ns:umsýsla fundur="11" lgþ="158" tími="2026-09-24T14:43:00">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="um" nr="56">
      <ns:málsheiti>Staða barna með íslensku sem annað mál í leik- og
      grunnskólum</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég deili áhyggjum sem komu fram hjá hv.
    málshefjanda, Jóni Pétri Zimsen, af þeim hópi barna, vaxandi hópi, sem
    talar íslensku sem annað tungumál. Ef hann nær ekki tökum á því er það
    auðvitað honum sjálfum mest til baga en líka samfélaginu þegar þessi hópur
    er orðinn svo stór. Við getum hreinlega óttast hvernig okkar samfélag
    þroskast á næstu árum ef allt að 20% þeirra sem eru í skólakerfinu geta
    ekki tekið þátt á jafnréttisgrundvelli á við hina til að sækja fram í
    nýsköpun og menntun og íþróttum og hvað það er sem við erum að sækjast
    eftir. Ég hef áhyggjur af því að við horfðum upp á fjárlög síðasta árs og
    þá átti þetta ár að enda í 27 milljörðum en stefnir í 67. Síðan koma hér
    skilaboð um hallalaus fjárlög. Við vitum að framhaldsskólakerfið er
    vanfjármagnað. Við vitum að MMS er að gera mjög góða hluti en vantar meira
    fjármagn, m.a. til að framleiða enn meira af samræmdu námsefni, sem ég
    heyri að kennararnir eru að kalla eftir þar sem ríkisstjórnin og hæstv.
    ráðherra hafa skorið niður peninga til farsældarinnar um 1,1 milljarð inn
    í jöfnunarsjóðinn og segja bara: Sveitarfélögin eiga að gera þetta. Við
    vitum að skólakerfið hringinn í kringum landið er að glíma við ólíka
    hluti. Það eru litlir skólar með stóran hóp af börnum með erlendan
    uppruna.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég hef áhyggjur af því að falleg orð dugi ekki til, hæstv.
    ráðherra. Ég hef áhyggjur af því, sem við í Framsókn lögðum reyndar til í
    fjárlögum síðasta árs, að bæta 200 milljónum ofan á það sem átti að fara
    til íslenskukennslu. Það þarf líka, við megum ekki gleyma því, að kenna
    foreldrunum af því að þeir eru í samskiptum við börnin og kennarana í
    skólanum. Við lögðum til nýja mælikvarða og ég hvet hæstv. ráðherra til að
    skoða það, bæði markmið sem voru skýrari en komu fram í fjármálaáætlun og
    fjárlögum og mælikvarða, því að ég trúi því ekki að það sé bara hægt
    <ns:bjalla/> að segja að þetta gangi betur af því að við tölum um það,
    henda síðan boltanum yfir til sveitarfélaganna og segja: Þið getið bara
    gert þetta. Ríkið verður að bera ábyrgð.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>