<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-24T14:45:27" skst="RGuðb" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-24 14:47:54 -->

  <ns:umsýsla fundur="11" lgþ="158" tími="2026-09-24T14:45:27">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="um" nr="56">
      <ns:málsheiti>Staða barna með íslensku sem annað mál í leik- og grunnskólum</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka málshefjanda, hv. þm. Jóni Pétri
    Zimsen, fyrir að setja þetta mál á dagskrá og hæstv. ráðherra fyrir
    ágætisviðbrögð hér áðan. En ég tek svo sannarlega undir að falleg áform og
    fögur fyrirheit eru góðra gjalda verð en eru ekki nóg í þessu sambandi.
    Það er ekki eins og þetta sé að gerast núna eða í fyrra eða hittiðfyrra.
    Sú sem hér stendur hóf að vekja athygli á stöðunni í skólastofum í
    grunnskólum landsins fyrir nokkrum árum, starfandi þá á öðrum vettvangi,
    en þetta hefur náttúrlega breyst svo gríðarlega hratt. Bara síðastliðinn
    áratug hafa börn af erlendum uppruna farið úr því að vera í kringum 10–12%
    í skólunum okkar upp í að vera, eins og hér hefur komið fram, 30%. Það
    segir sig sjálft að það er ekki í mannlegu valdi kennara að takast á við
    slíkar breytingar. Álagið hefur verið þvílíkt og veldur því að við erum
    komin á þennan stað, að við vitum ekki alveg hvernig eigi að bregðast við
    og verið er að leita leiða til þess.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég vil benda á að kerfið er mjög dreift og völdin í kerfinu eru
    mjög dreifð. Það er í höndum hvers skóla og sveitarfélags að ákveða
    hvernig þessum málum er háttað. Það væri til bóta að samhæfa verkefni og
    hlutverk sveitarfélaga og ríkisins í þessum efnum og það er sannarlega það
    sem er verið að reyna að gera. En við þurfum að stíga þessi skref núna.
    Þetta snýst um framtíð barnanna okkar, af erlendum uppruna sem íslenskra,
    þetta snýst um framtíð Íslands. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra að
    því, <ns:bjalla/> hvort hún geti komið inn á það hér í ræðu á eftir —
    tíminn er búinn. <ns:bjalla/> Ég held að ég biðji aftur um orðið á
    eftir.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>