<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-24T14:47:59" skst="KÁB" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-24 14:50:12 -->

  <ns:umsýsla fundur="11" lgþ="158" tími="2026-09-24T14:47:59">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="um" nr="56">
      <ns:málsheiti>Staða barna með íslensku sem annað mál í leik- og grunnskólum</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Við ræðum um stöðu barna í leik- og grunnskólum sem
    eru að læra íslensku sem annað tungumál. Ég vil þakka málshefjanda fyrir
    að eiga frumkvæði að þessari mikilvægu umræðu og hæstv. mennta- og
    barnamálaráðherra fyrir hennar innlegg. Hér er mikilvægt að greina á milli
    hugtaka. Börn með erlendan bakgrunn eru stór og fjölbreyttur hópur. Mörg
    þeirra tala íslensku reiprennandi, jafnvel þótt talað sé annað tungumál á
    heimili þeirra. En hér vil ég fyrst og fremst ræða um börn sem þurfa
    stuðning til að ná góðum tökum á íslenskunni. Íslenskan er annað og meira
    en ein af mörgum námsgreinum þessara barna. Hún er tungumál skólans,
    lykill barnsins að öðru námi, samskiptum, vináttu og þátttöku í íslensku
    samfélagi. Ef barn nær ekki nægilega góðum tökum á íslensku hefur það
    hamlandi áhrif alla skólagönguna og fram eftir lífi. Um þetta tel ég að
    við getum öll verið sammála.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mikilvægt starf hefur verið unnið á þessu sviði. Ráðherra minntist
    á MEMM — menntun, móttöku og menningu. Mikilvægur þáttur þess verkefnis er
    einmitt að styrkja kennslu í íslensku sem öðru tungumáli. Þar fer fram
    stöðumat, unnið er með sérhannað námsefni og verkfæri fyrir skóla og veitt
    ráðgjöf til kennara og starfsfólks. Nú nær þessi ráðgjöf jafnframt til
    sveitarfélaga utan Reykjavíkur.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Við höfum verk að vinna. Í þessum málaflokki sem mörgum öðrum er
    stór viðhaldsskuld. Við þurfum fyrst og fremst að ná snemma til barnanna.
    Þar skiptir leikskólinn gríðarlegu máli enda gefst þar einstakt tækifæri
    til málörvunar á mikilvægum árum málþroskans. Við þurfum síðan, eins og
    fram hefur komið hér ítrekað, að tryggja skólunum fagfólk, kennsluefni og
    ráðgjöf og fylgjast markvisst með árangrinum. Og loks þarf að tryggja
    jöfnuð í þessu sem öðru. Það má ekki ráðast af sveitarfélagi, skóla eða
    einstökum kennara hversu góðan stuðning barnið fær. Þetta snýst ekki
    aðeins um skólagöngu þessa hóps barna. Þetta snýst líka um íslensku sem
    sameiginlegt tungumál okkar og um að öll börn sem alast upp geti tekið
    fullan þátt í íslensku samfélagi.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>