<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-24T14:52:43" skst="SMás" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-24 14:55:03 -->

  <ns:umsýsla fundur="11" lgþ="158" tími="2026-09-24T14:52:43">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="um" nr="56">
      <ns:málsheiti>Staða barna með íslensku sem annað mál í leik- og
      grunnskólum</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir að taka upp
    þessa mikilvægu umræðu og hæstv. ráðherra fyrir sitt framlag. Þetta er
    auðvitað grafalvarlegt mál eins og komið hefur verið inn á, staða erlendra
    barna í grunnskólakerfinu. Ég bendi í upphafi á að innflytjendastefnan á
    síðustu árum og áratugum, einkum kannski síðasta áratug eða tvo, hefur
    verið ósjálfbær með öllu og hugsunin hjá okkur á Alþingi verður að vera að
    skipta um kúrs á því sviði. Það er ljóst að ef fram heldur sem horfir mun
    þetta ekki skána, út frá því sem við höfum nú þegar séð. Það þýðir ekki að
    við grípum ekki til aðgerða núna og skoðum þetta ekki heildstætt út frá
    stöðunni eins og hún er orðin. Það er margt sem maður myndi vilja nefna,
    auðvitað margvíslegar aðgerðir sem þarf að gera til að styðja betur við
    þessi börn en líka að breyta aðeins um nálgun í kerfinu. Ég hef nefnt t.d.
    túlkaþjónustu fyrir foreldra. Mér finnst staðan í þeim málaflokki stundum
    hafa gefið til kynna viðhorf sem mér finnst ekki nægilega gott, t.d. um að
    það sé alveg eðlilega litið á það að vera hér árum eða áratugum saman en
    fá enn túlkaþjónustu við samskipti við skóla. Ég held að börnin læri það
    sem fyrir þeim er haft. Þetta er ekkert einfalt mál fyrir alls konar fólk
    að læra íslensku en ef við ætlum að láta eins og hér sé raunveruleg
    aðlögun í stöðunni í öllum þessum tilvikum þá verðum við að gera kröfur
    samhliða því sem við bjóðum upp á alls konar stuðning. Þannig að það er
    eitt og ég er með þingmál í vinnslu til að taka á þessu, hvort sem er hjá
    ríki eða sveitarfélögum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Annað er auðvitað kjarni málsins einnig, sem er líka
    viðhorfsvandi, að það hafa verið ákveðnar fræðikenningar, sem ég lít svo á
    að séu að hluta til úreltar í raun, um að móðurmál barnsins sé lykillinn
    að allri annarri málkunnáttu. Þetta er líka kenning eða hugmynd sem við
    þurfum hægt og rólega að reyna að vinda ofan af því að eins og rannsóknir
    sýna og eins og málfræðingurinn Elín Þöll Þórðardóttir hefur bent á í mjög
    vandaðri grein nýlega um þetta þá er það mál samfélagsins sem börnin eiga
    raunverulegan möguleika á að verða fullnuma í <ns:bjalla/> og ná
    raunverulegum tökum á til lengri tíma þótt móðurmálið geti haft ákveðið
    menningarlegt og tilfinningalegt gildi. Þetta verðum við að horfast í augu
    við í skólakerfinu þar sem íslenskan á að vera númer eitt alls staðar,
    alltaf.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>