<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-24T14:55:11" skst="IngÞ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-24 14:57:36 -->

  <ns:umsýsla fundur="11" lgþ="158" tími="2026-09-24T14:55:11">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="um" nr="56">
      <ns:málsheiti>Staða barna með íslensku sem annað mál í leik- og
      grunnskólum</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Það var einhvern tímann einhver sem sagði við mig að
    maður ætti ekki að tala um sjálfan sig í stjórnmálum en mér finnst
    eiginlega óhjákvæmilegt að gera það í þessari umræðu af því að þetta barn
    sem hæstv. ráðherra var að lýsa í sinni ræðu, sem situr í kennslustofunni
    og skilur ekki það sem kennararnir segja og skilur ekki brandarana en hlær
    samt með kannski, til að reyna að vera með — ég var þetta barn. Ég var það
    reyndar ekki á Íslandi en ég flutti tíu ára gamall til Svíþjóðar og kunni
    hvorki sænsku né ensku þannig að það var ekki hægt að nota ensku, sem var
    samt mjög fínt, þá var maður svolítið neyddur til að reyna að læra sænsku.
    Þannig að ég hef verið þarna. Ég var samt í ákveðinni forréttindastöðu af
    því að það er tiltölulega auðvelt að fara úr íslensku yfir í sænsku og
    síðan var líka pabbi minn ekki byrjaður að vinna þannig að hann sat hjá
    mér, við hliðina á mér, í skólastofunni fyrstu tvær vikur skólagöngunnar.
    Það eru ekki öll börn svona heppin og við þurfum að taka vel utan um
    þau.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mér finnst umræðan að einhverju leyti hafa þroskast í þessum
    málaflokki síðastliðin ár. Ég man eftir því þegar þáverandi hæstv.
    ráðherra, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, var að velta upp hugmyndum um
    móttökudeildir og móttökuskóla. Það fór mjög illa í mjög margt fólk sem
    fór að fleygja orðum eins og aðskilnaðarstefna og rasismi og þetta fór
    ekki vel í mig, hafandi þessa reynslu. Það getur verið mjög niðurlægjandi
    og erfitt að vera þetta eina barn í skólastofunni sem skilur ekki það sem
    kennararnir eru að segja, skilur ekki brandarana og vill bara eignast
    vini. Að mörgu leyti held ég, þegar við erum að ræða t.d. móttökudeildir,
    þá geti verið betra fyrir börn að vera þá í bekk eða í hóp með jafningjum
    sem eru að glíma við það sama, komast yfir svona erfiðasta hjallann þegar
    kemur að tungumálinu og síðan fara í bekk með hinum, en kannski samt á
    lóðinni, spila fótbolta og svona með öðrum börnum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég tek hjartanlega undir með hv. þm. Jóni Pétri Zimsen að við
    eigum ekki að benda á börnin. Ég er ekki hrifinn af því þegar þingmenn hér
    eru að benda á innflytjendastefnuna og þá er ég ekki að segja að við eigum
    ekki að ræða innflytjendamál en þessi hópur barna er ekki rót vandans eða
    að þau séu of mörg. Við getum horft á Svíþjóð <ns:bjalla/> sem dæmi sem er
    land sem hefur glímt við meiri áskoranir í útlendingamálum en er samt að
    standa sig betur í PISA og það fyrir minni pening. <ns:bjalla/> Við getum
    gert hlutina talsvert betur og ég hvet hæstv. ráðherra til dáða í þeim
    efnum.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>