<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-24T14:57:42" skst="HHL" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-24 15:00:11 -->

  <ns:umsýsla fundur="11" lgþ="158" tími="2026-09-24T14:57:42">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="um" nr="56">
      <ns:málsheiti>Staða barna með íslensku sem annað mál í leik- og grunnskólum</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir að efna til
    þessarar umræðu og hæstv. ráðherra fyrir að vera hér með okkur í dag. Við
    þurfum að horfast í augu við að okkur hefur ekki gengið nægilega vel hér
    og maður heyrir það á umræðunum að það eru allir sammála um að tungumálið
    okkar sé grunnurinn að því að við séum ekki að byggja upp stéttaskiptingu,
    að við séum að skapa samfélag þar sem allir hafi tækifæri, tungumálið sem
    bindur okkur saman, tungumálið sem gerir okkur að samfélagi. Það eru allir
    sammála um það. Það sem skortir hins vegar á er framkvæmdin, hvernig við
    náum þeim árangri sem stefnt er að. Ég vil undirstrika hér að peningar eru
    einn hluti af því. Við þurfum vissulega að fjárfesta en það sem skiptir
    mestu máli í því að við náum árangri er, rétt eins og hv. þm. Jón Pétur
    Zimsen kom inn á í sinni ræðu, að við þurfum að hafa mælikvarða og við
    þurfum að hafa aga og festu í framkvæmdinni sjálfri. Ef við höfum það ekki
    þá getum við haldið öll heimsins málþing eða eytt fjármagni eða aukið
    stuðning við kennara, sem eru allt mikilvægir þættir og lykilþættir. En
    það að mæla árangurinn og hafa aga og festu í framkvæmd er algjör lykill,
    þannig að eyðum tímanum í að fara yfir sviðið, sjá hvaða mælanlega árangri
    við ætlum að ná á næsta ári, næstu tveimur árum, á næstu fimm árum, búum
    til fjárfestingaplan og framkvæmdaplan og förum síðan í verkefnið
    skipulega og af aga og festu. Það er það sem þessi börn eiga skilið. Það
    er slík umgjörð.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Að lokum vil ég einnig segja að við þurfum auðvitað að hugsa um
    þessa hluti í samhengi við atvinnustefnu. <ns:bjalla/> Við þurfum að passa
    upp á að við séum alltaf að tryggja að það sé stuðningur fyrir hendi,
    <ns:bjalla/> að samfélagið okkar ráði við vöxt barna í skólakerfinu,
    þannig að þessir hlutir þurfa að vera í jafnvægi. Gerum þetta vel. Við
    erum öll sammála um þetta mál.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>