<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-24T15:00:19" skst="JPZ" tegflm="L" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-24 15:02:47 -->

  <ns:umsýsla fundur="11" lgþ="158" tími="2026-09-24T15:00:19">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="um" nr="56">
      <ns:málsheiti>Staða barna með íslensku sem annað mál í leik- og
      grunnskólum</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið áðan og þeim
    þingmönnum sem hér hafa tekið til máls, sérstaklega vil ég nefna hv. þm.
    Ingvar Þóroddsson með fína ræðu. Mig langar líka að bregðast aðeins við
    orðum hv. þm. Dagbjartar Hákonardóttur og segja að sá sem hér stendur
    hefur talað mikið fyrir leikskólunum, að það séu íslenskumælandi starfandi
    á leikskólunum. Ég veit að á Norðurlöndunum, t.d. í Noregi, fá börn með
    innflytjendabakgrunn afslátt eða ókeypis á leikskólann sem skiptir miklu
    máli en dregur ekki úr því að börn sem fæðast á Íslandi og eru í þeirri
    stöðu eru þremur árum á eftir jafnöldrum sínum, þrátt fyrir að hafa sum
    eða mörg hver gengið í gegnum íslenskan leikskóla.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En ég vil spyrja: Hvað á að breytast hvað árangur varðar? Ráðherra
    fór hér yfir málið en nefndi í rauninni engar tölur, engin viðmið, ekkert
    mælanlegt og engan tíma. Staðan er að 28% nemenda af erlendum uppruna ná
    ekki grunnfærni í lesskilningi í dag. Hver á staðan að vera 2030? Þau eru
    þremur árum á eftir jafnöldrum sínum og þá auðvitað fyrsta kynslóðin líka.
    12% þeirra sem kenna íslensku sem annað tungumál eru ekki með menntun á
    sviðinu. Hvaða mælikvarða þurfum við þar? Við þurfum bara að fá þetta upp.
    Ráðuneytið er búið að horfa upp á þetta í mörg, mörg ár. Þetta byrjaði
    löngu áður en hæstv. ráðherra tók við ráðuneytinu og þeir ættu að geta
    sett niður mælanleg markmið á þetta hlutfall, 28%, og hver staðan eigi að
    verða 2030. 62 stiga bilið, hvert á það að vera 2030? Hvert á hlutfall
    sérhæfðra kennara að vera árið 2030? Við þessu verðum við að fá svör. Það
    verður að vera einhvers konar pressa og aðhald á fullorðna fólkið. Annars
    munum við ala upp kynslóð sem verður bara jaðarsett, stéttaskipting mun
    aukast og alls konar félagsleg vandamál munu skjóta upp kollinum, enn
    meira en er í dag. <ns:bjalla/> Þetta er gríðarlega mikilvægt mál og við
    sem þjóð verðum að taka á þessu. Þessi mælanlegu viðmið eru nauðsynleg og
    ég hvet ráðherra til að ígrunda það með fólkinu sínu í ráðuneytinu,
    íslenskum börnum öllum og samfélaginu til góða.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>