<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="heilbrrh." frhr="0" id="r2026-09-24T15:05:42" skst="AMöll" tegflm="R" tegr="F" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-24 15:16:24 -->

  <ns:umsýsla fundur="11" lgþ="158" tími="2026-09-24T15:06:01">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="a" nr="131">
      <ns:málsheiti>aðgerðaáætlun vegna offitu á Íslandi fyrir árin 2026--2030</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir tillögu til þingsályktunar um
    aðgerðaáætlun vegna offitu á Íslandi fyrir árin 2026–2030. Hún var lögð
    fram á síðasta þingi en náði ekki fram að ganga og er því endurflutt
    óbreytt.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Frú forseti. Rannsóknir hafa sýnt fram á línulegt samband á milli
    hækkaðs líkamsþyngdarstuðuls og aukinnar áhættu á langvinnum sjúkdómum
    eins og sykursýki 2, hjarta- og æðasjúkdómum, lifrarsjúkdómum, allt að 13
    tegundum krabbameins, stoðkerfisvanda og almennt hækkaðrar dánartíðni en
    15% allra ótímabærra dauðsfalla árið 2024 mátti rekja beint til offitu.
    Vaxandi tíðni offitu er ein af stærstu lýðheilsuáskorunum samtímans.
    Ísland er ekki undanskilið þessari þróun og hefur tíðni offitu farið hratt
    vaxandi hérlendis líkt og annars staðar í heiminum. Árið 2025 voru 60%
    fullorðinna og 26,4% barna of þung eða með offitu. Þar af eru 24%
    fullorðinna og 7,5% barna með offitu. Í nýrri skýrslu frá OECD kemur fram
    að forvarnir til að sporna gegn vaxandi tíðni offitu séu stærsti staki
    þátturinn sem fækkar tilfellum langvinnra sjúkdóma til framtíðar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þingsályktunartillagan byggist á skýrslu starfshóps sem var
    skipaður af ráðherra, Svandísi Svavarsdóttur, í nóvember 2021 og skilaði
    skýrslu til þáverandi heilbrigðisráðherra, Willums Þórs Þórssonar, í
    febrúar 2024. Árið 2025 fór svo fram umfangsmikil vinna
    heilbrigðisráðuneytisins með aðkomu fjölbreytts hóps fagfólks og annarra
    haghafa. Að þessari tillögu hafa því komið þrír heilbrigðisráðherrar og
    fjöldi fagfólks.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Árið 2030 er gert ráð fyrir því að 192.000 Íslendingar verði í
    ofþyngd eða með offitu og að stór hluti þeirra muni lifa við skert
    lífsgæði vegna hennar eða vegna langvinnra sjúkdóma. Samkvæmt greiningu
    OECD er því til mikils að vinna að ná að draga úr tíðninni á Íslandi. Með
    öflugum forvörnum mætti spara 4% útgjalda til heilbrigðisþjónustu á hverju
    ári fyrir utan bætt lífsgæði. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur
    ítrekað hvatt þjóðir heims til að bregðast við þessari þróun með
    kerfisbundnum aðgerðum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Orsakir offitu eru fjölþættar. Nú er vitað að um flókinn
    efnaskiptasjúkdóm er að ræða þar sem samsetning fituvefjar og hormóna
    breytist. Sjúkdómurinn á m.a. rætur að rekja til erfðaþátta, umhverfis eða
    áfalla og því er mikilvægt að tekið sé tillit til fjölbreyttra áhrifaþátta
    við greiningu og meðferð.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Um helmingur þeirra aðgerða sem lagðar eru fram í tillögunni
    rúmast innan ramma fjárlaga og felur í sér að tiltekin verkefni séu sett í
    forgang hjá þeim stofnunum sem eru ábyrgar fyrir aðgerðunum. Þær aðgerðir
    sem fela í sér viðbótarkostnað fela í sér útgjöld til skamms tíma, t.d.
    vegna innleiðingar á nýju verklagi eða kerfi, en fullyrða má að mikil
    hagkvæmni felist í því að sporna hratt við vaxandi tíðni offitu, lágmarka
    alvarlega fylgisjúkdóma og auka lífsgæði þeirra sem lifa með offitu. Á
    fimm ára tímabili áætlunarinnar er gert ráð fyrir 1,2 milljarða
    heildarkostnaði. Þar telur mest að koma á fót annars og þriðja stigs
    sérfræðiþjónustu fyrir bæði börn og fullorðna með offituvanda en slík
    úrræði eru nauðsynleg til að veita viðeigandi greiningu og meðferð og
    fækka þannig þeim sem búa við skert lífsgæði af völdum sjúkdómsins. Þetta
    mun án efa leiða til sparnaðar til lengri tíma, t.d. lægri lyfjakostnaðar
    vegna fylgisjúkdóma, kostnaðar vegna sérhæfðra meðferða, vinnutaps, örorku
    og fleira.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Vissulega er besta leiðin að bæta almenna
    lýðheilsu eins og unnið er að samkvæmt lýðheilsustefnu en nú dugar það
    ekki til. Það þarf að snúa við þessari þróun sem ég hef rakið með sértækum
    aðgerðum. Fjárfesta þarf í skilvirkum forvörnum, skimunum,
    greiningaraðferðum, meðferðarúrræðum og langtímaeftirfylgni sem draga úr
    sjúkdómsbyrði einstaklinga og samfélagsins í heild. Aðgerðaáætluninni er
    ætlað að endurspegla þau grunngildi sem koma fram bæði í heilbrigðisstefnu
    og lýðheilsustefnu. Þá tekur hún mið af leiðarvísi
    Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar um forvarnir og meðferð sem og
    alþjóðlegum gæðaviðmiðum og klínískum leiðbeiningum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Tillagan skiptist í þrjá kafla og eru sameiginleg markmið aðgerða
    að móta heildstætt þjónustuferli sem samanstendur af lýðheilsu- og
    forvarnaaðgerðum, skimun, greiningu, meðferð og eftirfylgni yfir allan
    lífsferil einstaklings. Samhliða er mikilvægt að þeir einstaklingar sem
    eru með heilsufarsvandamál fái viðeigandi meðferð og stuðning. Efling
    forvarna gegn þekktum áhættuþáttum offitu er lykilatriði í að hægja á
    vaxandi tíðni. Þá er einnig mikilvægt að leggja ekki alla ábyrgð á
    einstaklinginn heldur stíga skref sem hafa jákvæð áhrif á hegðun með
    breytingum og hvötum í nærumhverfi einstaklings en nærumhverfið styður
    ekki alltaf við heilsusamlegt líferni og þá verður árangurinn lítill. Því
    er mikilvægt að beita aðgerðum sem stuðla m.a. að hollara mataræði og
    aukinni hreyfingu. Þá þarf að leita leiða til að lágmarka fordóma og vinna
    gegn rangfærslum um sjúkdóminn þannig að umræðan fari fram af virðingu með
    áherslu á uppbyggilega orðræðu um eðli sjúkdómsins og skaðsemi
    fordóma.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Frú forseti. Markviss og reglubundin gagnasöfnun er grundvöllur
    árangursríkrar stefnu og lykilatriði þegar kemur að því að meta
    árangurinn. Því er lagt til að hefja á ný landskönnun á mataræði barna þar
    sem nýjustu niðurstöðurnar eru orðnar 20 ára gamlar en norræn vöktun á
    mataræði, hreyfingu og holdafari 7–12 ára barna á tíu ára tímabili sýndi
    neikvæða þróun á mataræði íslenskra barna. Í áætluninni er sérstök áhersla
    til verndar börnum enda vitað að offita í æsku fimmfaldar líkur á offitu
    og fylgisjúkdómum á fullorðinsárum. Þá er einnig lögð til þátttaka í
    alþjóðlegu samstarfi um offitu barna á vegum
    Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar. Þannig er hægt að tryggja gæði
    þeirra gagna sem eru notuð við stefnumótun og forvarnir, bera saman
    þyngdarþróun barna og unglinga milli þjóða og skapa tækifæri til að nýta
    alþjóðlega þekkingu og reynslu annarra landa til að þróa árangursríkar og
    gagnreyndar lausnir hér á landi.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Meðferð vegna offitu miðar ekki einungis að því að stuðla að
    þyngdartapi heldur fyrst og fremst að bættu heilsufari, líðan og
    lífsgæðum. Horfa þarf til langtímabreytinga á ýmsum lífeðlisfræðilegum
    mælingum eins og blóðþrýstingi ásamt því að meðhöndla fylgisjúkdóma.
    Byggja þarf upp fjölbreytt meðferðarúrræði sem grundvallast á þeirri
    staðreynd að offita er líffræðilegur og fjölþættur sjúkdómur og krefst
    meðferðar sem er heildræn og gagnreynd og styður við heilbrigðar
    lífsvenjur. Meðferðarmöguleikar við offitu hafa breyst mikið á undanförnum
    árum, sérstaklega með tilkomu þyngdarstjórnunarlyfja og efnaskiptaaðgerða.
    Því þarf að þróa vinnulag er varðar slíka sérhæfða meðferð. Öflug
    sérfræðiþjónusta við offitu eykur aðgengi að þverfaglegri meðferð og
    minnkar álag á aðra sérfræðiþjónustu og sjúkrahúsþjónustu. Með þessari
    áætlun er ætlunin að tryggja þeim sem lifa með sjúkdóminn offitu
    viðeigandi meðferð.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Frú forseti. Ég hef nú farið yfir helstu efnisatriði tillögunnar
    og legg til að henni verði að lokinni fyrri umræðu vísað til hv.
    velferðarnefndar.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>