<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-24T15:16:34" skst="RGuðb" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-24 15:19:14 -->

  <ns:umsýsla fundur="11" lgþ="158" tími="2026-09-24T15:16:34">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="a" nr="131">
      <ns:málsheiti>aðgerðaáætlun vegna offitu á Íslandi fyrir árin
      2026--2030</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir sína yfirferð.
    Við þekkjum svo sem þessa tillögu frá fyrra þingi. Mig langar að fagna því
    að þetta sé að koma fram. Það er margt mjög jákvætt í þessu og við vitum
    að þetta er lýðheilsumál og að forvarnir og lýðheilsa borgar sig til
    lengri tíma. Það er margsannað mál og í þessum tiltekna málaflokki, offitu
    á Íslandi, er sérlega brýnt að gera allt sem hægt er til að fræða og bæta
    ástandið. Það er ekki gott að við séum hér á landi með þyngstu börnin á
    Norðurlöndunum. Það er eitthvað sem segir sína sögu og þarf að bregðast
    við. Ég tek sérstaklega undir það sem fram kemur í þessari tillögu, að
    forvarnir gegn offitu í ung- og smábarnavernd og í heilsuvernd skólabarna
    sé mikilvæg og geti skilað árangri og svo fræðsla og skimun ungmenna því
    að fræðsla til ungs fólks sem er að breytast í fullorðna einstaklinga og
    mataræðið og hreyfing og þetta allt saman hefur gríðarlega mikil áhrif á
    líðan þeirra og þroska. Það er því margt þarna sem maður getur vel tekið
    undir og það verður spennandi, áhugavert og gaman að taka á þessu máli í
    hv. velferðarnefnd.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En mig langar til að spyrja ráðherrann, af því að það kemur þarna
    fram líka að það verði tekið mið af ráðleggingum
    Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar um notkun hagrænna hvata og m.a.
    fýsileika þess að lækka álögur á grænmeti og ávexti en einnig að hækka
    álögur á sérlega orkuríkar, næringarlitlar og gjörunnar matvörur. Mig
    langar að fá það fram frá ráðherranum hvort hún sé á þeirri skoðun að
    <ns:bjalla/> svokallaður óhollustuskattur eða sykurskattur sem var reyndur
    hér einu sinni sé eitt af því sem sé til alvarlegrar skoðunar og hvaða
    augum hæstv. ráðherra líti á það.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>