<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="heilbrrh." frhr="0" id="r2026-09-24T15:19:19" skst="AMöll" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-24 15:21:27 -->

  <ns:umsýsla fundur="11" lgþ="158" tími="2026-09-24T15:19:19">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="a" nr="131">
      <ns:málsheiti>aðgerðaáætlun vegna offitu á Íslandi fyrir árin
      2026--2030</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Rósu Guðbjartsdóttur fyrir jákvæð
    viðbrögð. Ég er hjartanlega sammála því að ung- og smábarnavernd er
    gríðarlega mikilvæg því að við vitum að því fyrr sem er gripið inn, þeim
    mun betra. Ég þakka henni sömuleiðis fyrir að nefna fræðslu til ungs
    fólks. Það var ekki í upprunalegu tillögunni en kom einmitt fram eftir
    samráð því að við erum oft að sleppa hendinni eftir að grunnskóla lýkur
    þannig að fólki sem er á bilinu 17–18 ára verður boðið í móttöku vegna
    þessa.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég hef engar fastmótaðar fyrir fram skoðanir á notkun hagrænna
    hvata. Ég skoðaði þetta mjög vel fyrir um tíu árum og það eru vissulega
    gögn erlendis frá, frá Mexíkó t.d., sem sýna að t.d. sykurskattur, þó að
    hann sé ekki nefndur þarna, hafi skilað sér í bættri heilsu. En þetta er
    ekki óumdeilt og því er lagt til að skipaður verði þverfaglegur
    starfshópur sem skoði þetta. Hér þarf auðvitað að rýna gögn. Ég hef sjálf
    ekki lesið skýrslu sem vitnað er til frá Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni en
    við vitum að það borgar sig að auðvelda holla valið og torvelda kannski
    það óholla og það þarf að skoða þetta saman. Við vitum að það er afar
    mikilvægt að eiga við gjörunnu matvælin og t.d. að merkja þau og það er
    gríðarlega mikilvægt að ráðast gegn markaðssetningu á óhollustu sem snýr
    beinlínis að börnum og ungu fólki. Ég ætla því að leyfa mér að hafa
    algerlega opinn hug og taka leiðbeiningum þess starfshóps sem verður
    skipaður.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>