<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-24T15:21:35" skst="RGuðb" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-24 15:24:02 -->

  <ns:umsýsla fundur="11" lgþ="158" tími="2026-09-24T15:21:35">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="a" nr="131">
      <ns:málsheiti>aðgerðaáætlun vegna offitu á Íslandi fyrir árin
      2026--2030</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra andsvarið. Já, ég er
    þeirrar skoðunar að fræðsla og forvarnir, fræðsla sérstaklega, sé það sem
    við eigum að leggja áherslu á. Við sjáum það líka, ef við tökum sem dæmi
    það sem hefur verið gert í sumum sveitarfélögum með eldri borgurum, nú fer
    ég yfir í þá, þar sem hefur verið lögð sérstök rækt við það að fara í
    forvarnastarf með þeim, hverju það hefur skilað í öllu tilliti, eins og
    Janus-heilsueflingarverkefnið er glöggt dæmi um. Það er því hægt að gera
    svo margt og skila góðum árangri með forvörnum og fræðslu. Þar hefur t.d.
    komið fólk sem hefur ekkert sinnt þessum málum eða yfirleitt kynnt sér
    áhrif mataræðis eða hreyfingar á sína eigin heilsu en hefur náð miklum
    árangri, þannig að það er margt hægt að gera með fræðslu og
    forvörnum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég vara við því að fara að grípa inn í með skattahækkunum. Það var
    prófað hér fyrir allnokkru og lagt niður árið 2015, svokallaður
    sykurskattur. Áhrifin af því þóttu óljós og það þótti flókið í
    tollakerfinu og í viðskiptum að hafa slíkt kerfi þannig að ég vara
    náttúrlega við skattahækkunum en styð það eindregið að við gerum allt hvað
    hægt er til að lækka verð á ávöxtum og grænmeti og slíku sem á að vera
    öllum aðgengilegt en við vitum að svo er ekki endilega í dag. Þess vegna
    spyr ég í seinna andsvari, ég átta mig á því að það er dálítið
    yfirgripsmikið, en hvernig ættum við að skilgreina óhollustu? <ns:bjalla/>
    Erum við ekki komin dálítið fram úr okkur með því að fara að skilgreina
    hvað óhollusta er <ns:bjalla/> í stað þess að vera að fræða og efla
    forvarnir?</ns:mgr>

    <ns:mgr><ns:forseti skst="KÁB">Forseti vill minna hv. þingmenn á að gæta
    ræðutímans. Það er dálítið um að verið sé að fara yfir
    ræðutímann.</ns:forseti></ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>