<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="heilbrrh." frhr="0" id="r2026-09-24T15:24:16" skst="AMöll" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-24 15:26:17 -->

  <ns:umsýsla fundur="11" lgþ="158" tími="2026-09-24T15:24:16">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="a" nr="131">
      <ns:málsheiti>aðgerðaáætlun vegna offitu á Íslandi fyrir árin
      2026--2030</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Ég þakka hv. þm. Rósu Guðbjartsdóttur fyrir seinna
    andsvar. Hún hefur þá skoðun að fræðsla sé mikilvæg. Ég byggi ekki á
    skoðunum mínum heldur á gagnreyndri þekkingu og við vitum mætavel að
    fræðsla er ekkert gríðarlega öflugt forvarnatæki. Við vitum öll að áfengi
    er óhollt. Við vitum öll að tóbak er óhollt en það dugar ekki til og það
    er vegna þess hvernig við tökum ákvarðanir. Það er líka vegna þess að sumu
    er haldið að okkur o.s.frv. Við hugsum ekki alltaf rökrétt, við tökum ekki
    alltaf ákvarðanir sem eru bestar fyrir eigin hag. Þess vegna er svo
    mikilvægt að stuðla að því að gera holla valið auðveldara og torvelda
    óholla valið upp að vissu marki.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þingmaðurinn nefndi sykurskattinn sem hér var lagður á fyrir einum
    15 árum. Ég held að fólk sé sammála um að hann var ekki vel útfærður og
    það er ekki eðli slíkra neysluskatta að vera tekjulind. Þá eru þeir ekki
    að virka. Þeir eiga að virka þannig að fólk kaupi ekki vöruna og við vitum
    að til þess að virka þá þarf t.d. 20% hækkun á sykraða drykki. Við gætum
    alveg byrjað á því að færa gosdrykki, sykraða drykki, úr lægra í efra
    virðisaukaskattsþrep. Það væri einfalt. Við vitum líka að það þarf að
    lækka hollar vörur hliðstætt eða jafnvel meira til að það virki. En ég
    held að lykillinn hér sé að fara yfir stöðu nýrrar þekkingar og taka síðan
    ákvarðanir út frá því.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>