<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-24T15:26:25" skst="IngÞ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-24 15:28:10 -->

  <ns:umsýsla fundur="11" lgþ="158" tími="2026-09-24T15:26:25">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="a" nr="131">
      <ns:málsheiti>aðgerðaáætlun vegna offitu á Íslandi fyrir árin
      2026--2030</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. heilbrigðisráðherra
    fyrir að koma fram með þetta mál og fyrir sína framsögu, enda er margt
    afar gott í þessu máli eins og hv. þm. Rósa Guðbjartsdóttir kom inn á. En
    ég vildi kannski, eins og hv. þm. Rósa Guðbjartsdóttir, spyrja aðeins út í
    aðgerð nr. 1 í áætluninni sem snýr að notkun hagrænna hvata. Eins og kemur
    fram í tillögutextanum þá er markmiðið að lýðheilsustefna stjórnvalda taki
    mið af ráðleggingum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar um notkun
    hagrænna hvata. Það virðist því vera markmiðið að koma á hagrænum hvötum
    en síðan stendur undir framkvæmd, með leyfi forseta: „Skipaður verði
    þverfaglegur starfshópur“ sem verði „falið að skoða fýsileika þess að
    lækka álögur“. Ég velti því fyrir mér hvað við erum nákvæmlega að tala um
    hérna, þ.e. ef við samþykkjum þessa tillögu. Hvað nákvæmlega yrði þessum
    starfshópi falið að skoða? Er það hvers konar hagrænum hvötum væri best að
    koma á eða hvort það sé fýsilegt að koma á hagrænum hvötum yfir höfuð? Ég
    vona að þessi spurning mín skiljist.</ns:mgr>

    <!--https://www.althingi.is/altext/pdf/158/s/0131.pdf-->

    <ns:mgr>Hæstv. ráðherra kom inn á það í sínu síðara andsvari hér áðan að
    sykurskatturinn sem var settur á fyrir 15 árum hefði verið illa útfærður.
    Þá ætla ég bara að leyfa mér að spyrja, af því að ég var ekkert mjög mikið
    að velta skattamálum fyrir mér fyrir 15 árum: Af hverju var sá
    sykurskattur illa útfærður?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>