<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="heilbrrh." frhr="0" id="r2026-09-24T15:28:18" skst="AMöll" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-24 15:30:33 -->

  <ns:umsýsla fundur="11" lgþ="158" tími="2026-09-24T15:28:18">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="a" nr="131">
      <ns:málsheiti>aðgerðaáætlun vegna offitu á Íslandi fyrir árin
      2026--2030</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Ingvari Þóroddssyni fyrir andsvarið.
    Það er rétt að Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hefur bent á að samfélagslegar
    aðgerðir séu mikilvægar og þetta sem ég er búin að nefna hér áður, að
    auðvelda holla valið og torvelda það óholla; ég hef meira að segja skrifað
    hér „kannski“ torvelda það óholla, þannig að ég er ekki strangari en svo.
    En við vitum að takmörkun á notkun viðbætts sykurs er mjög mikilvægur
    forvarnarþáttur gegn offitu og við vitum líka að verð skiptir miklu máli
    varðandi hvað keypt er í matinn. Þegar við erum að tala um óholla vöru þá
    erum við að tala um þær sem innihalda hátt hlutfall sykurs og salts og
    kannski hátt hlutfall fitu og þar sem um er að ræða gjörunnar matvörur sem
    fá auðvitað æ meiri athygli.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í aðgerð nr. 1 er talað um að taka mið af ráðleggingum um mataræði
    og þær geta auðvitað verið afskaplega mismunandi milli landa. Framkvæmdin
    er að skipa þennan þverfaglega starfshóp og þar verði skoðaður fýsileiki
    þess að lækka álögur á grænmeti og ávexti og hækka álögur á sérlega
    orkuríkar, næringarlitlar og gjörunnar matvörur ásamt því að sporna við
    markaðssetningu óhollra matvæla gagnvart börnum. Við vitum að það er mikið
    vandamál í mörgum löndum. Ég hef sjálf setið málþing með breskum börnum
    sem lýstu því að þau fái í símann snemma morguns tilboð um alls konar
    óhollar vörur. Ég held að þetta sé ekki jafn slæmt hérlendis en við
    verðum, eins og ég segi, að taka mið af stöðu þekkingar <ns:bjalla/> og
    öðru. Við förum ekki af stað með þetta nema aðgerðirnar séu
    óyggjandi.</ns:mgr>

    <!---->
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>