<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-24T15:30:41" skst="IngÞ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-24 15:32:07 -->

  <ns:umsýsla fundur="11" lgþ="158" tími="2026-09-24T15:30:41">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="a" nr="131">
      <ns:málsheiti>aðgerðaáætlun vegna offitu á Íslandi fyrir árin
      2026--2030</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir hennar svar og fyrir
    að skýra betur út hvert markmiðið nákvæmlega er með þessari aðgerð nr. 1.
    Ráðherra nefndi hér áðan að fólk taki ekki alltaf þá ákvörðun sem er því
    fyrir bestu. Ég er alveg sammála því. Það eru ekki allir alltaf að taka
    þær ákvarðanir sem eru þeim fyrir bestu. En ég er þar staðsettur í
    pólitíkinni að ég velti því fyrir mér hvort það sé endilega mitt að taka
    þá ákvörðun fyrir þau.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég væri til í að velta þessu aðeins meira upp, líka varðandi
    flækjustigið á framkvæmdinni. Ég geri mér grein fyrir að það er að
    einhverju leyti verkefni starfshópsins að skoða fýsileikann. Nú hefur það
    verið markmið ríkisstjórnarinnar að einfalda skattkerfið, það hefur verið
    talað um að loka hinum ýmsu glufum o.s.frv. og það er náttúrlega gott og
    vel. En ég velti fyrir mér hvernig þetta samræmist þeim markmiðum. Ef við
    erum að tala um, eins og hæstv. ráðherra var að koma inn á, gjörunna
    matvöru o.s.frv. — mér finnst þetta hljóma eins og mjög flókið skattkerfi
    að koma á laggirnar og vinna gegn þeim markmiðum sem hafa almennt verið
    yfirlýst, þ.e. að einfalda skattkerfið frekar en hitt.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>