<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="heilbrrh." frhr="0" id="r2026-09-24T15:32:16" skst="AMöll" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-24 15:33:30 -->

  <ns:umsýsla fundur="11" lgþ="158" tími="2026-09-24T15:32:16">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="a" nr="131">
      <ns:málsheiti>aðgerðaáætlun vegna offitu á Íslandi fyrir árin
      2026--2030</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Ingvari Þóroddssyni fyrir seinna
    andsvar. Ég lít þannig á, eins og þingmaðurinn ýjaði að — auðvitað met ég
    líka frelsi einstaklingsins og ég er líka sammála John Stuart Mill sem
    líka lagði mikla vigt á frelsi, svo fremi sem það skaðaði ekki aðra. Það
    er auðvitað þannig að margt í þessu getur skaðað aðra, t.d. ef við erum að
    gefa börnum óhollan mat o.s.frv. Það þarf miklar bjargir í
    heilbrigðiskerfinu og þá notum við heldur ekki þá fjármuni í
    annað.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þetta með hvernig svona virkar á skattkerfi; þetta eru algerar
    spekúlasjónir og ég ætla ekki að leiðast út í það þegar við erum ekki
    komin með niðurstöðu þessa hóps. En t.d. hefur það að merkja gjörunnin
    matvæli ekkert með skatta að gera þannig að ég held að við tökum þessa
    umræðu þegar búið er að útfæra tillögurnar, hvenær svo sem það
    verður.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>