<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-24T15:33:45" skst="RagnaS" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-24 15:41:12 -->

  <ns:umsýsla fundur="11" lgþ="158" tími="2026-09-24T15:33:45">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="a" nr="131">
      <ns:málsheiti>aðgerðaáætlun vegna offitu á Íslandi fyrir árin
      2026--2030</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Mig langar að leggja nokkur orð í belg. Fyrst og
    fremst fagna ég þessari tillögu til þingsályktunar. Ég held að það sé
    gríðarlega mikilvægt að við hér á þingi eigum umræðu og samræður um þetta
    og að við getum reynt að gera okkar í að þroska umræðuna um offitu á
    Íslandi. Ég held að það sé mikilvægt að stjórnmálin fari ekki varhluta af
    því. Það er auðvitað ákveðin þróun sem á sér stað, bæði í heiminum og hér
    á Íslandi. Þetta er heilbrigðisvandi sem hefur marga áhrifaþætti og þetta
    er líka mjög félagslegur vandi. Það eru margir þættir sem hafa áhrif, eins
    og var rætt um hér áðan, umhverfið og hversu mikið óhollum vörum er ýtt að
    einstaklingum, fullorðnum og börnum. Þess vegna þykir mér gott hve
    heildstætt er tekið utan um þetta málefni í þessari þingsályktunartillögu.
    Það skiptir máli að það sé á öllum stigum heilbrigðisþjónustu, í fyrsta,
    annars og þriðja stigs þjónustu; það skiptir máli að það séu forvarnir þar
    og líka skimanir fyrir offitu. Þetta er eitthvað sem gleymist í dagsins
    amstri í heilbrigðiskerfinu. Þegar stóru málin taka yfir þá gleymist
    stundum að hugsa út í þetta. Forvarnir og skimun annars staðar en í
    heilbrigðiskerfinu skipta líka máli, eins og rætt hefur verið um á öðru
    stigi sem viðkemur lýðheilsu, sölu matvara o.s.frv. Ég tel mjög jákvætt að
    skipa eigi starfshóp til að kanna gögnin. Mér finnst mjög mikilvægt —
    auðvitað höfum við alls konar pólitískar áherslur hér í þessum þingsal —
    að við tökum gagnadrifnar ákvarðanir hér og skoðum þau gögn sem við höfum
    og hvað vísindin segja okkur. Þetta er ekki bara spurning um pólitískar
    skoðanir og hugsjónir heldur líka um hvað virkar í raunveruleikanum. Ef
    við viljum hafa jákvæð áhrif á þennan vanda þá verðum við að skoða allar
    hliðar og alla möguleika, tel ég, og hvað raunverulega virkar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mér finnst líka gott að sjá að mjög framarlega í
    aðgerðaáætluninni, í aðgerð nr. 2, er talað um að vinna gegn fordómum. Það
    skiptir gríðarlega miklu máli í heilbrigðiskerfinu og víðar. Eins og kemur
    fram í þingsályktunartillögunni getur þetta verið viðkvæmt, bæði þegar við
    ræðum þetta hér á Alþingi og sérstaklega í heilbrigðiskerfinu. Það skiptir
    máli að nálgast þessi mál af varfærni og passa að samskipti hafi ekki öfug
    áhrif en þau sem tilætluð eru og sérstaklega gagnvart börnum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þá langar mig líka aðeins að víkja að mikilvægi næringarfræðinga
    alls staðar í heilbrigðiskerfinu, sérstaklega í heilsugæslu. Maður hefur
    séð, hafandi starfað og haft stutta viðkomu í heilsugæslu, að það getur
    hjálpað mjög mikið og haft mjög jákvæð áhrif. Einstaklingar sem glíma við
    offitu telja það gott úrræði að geta leitað til næringarfræðings og
    jafnframt síðan í annars og þriðja stigs þjónustu. Ég nefni til að mynda
    Heilsuskóla Barnaspítalans sem er mjög mikilvægt úrræði. Það gladdi mig
    líka að sjá efnaskiptaaðgerðir sem hluta af heildstæðu þjónustuferli vegna
    offitu. Það hefur verið svolítið brotakennt, finnst mér, hvernig
    efnaskiptaaðgerðir hér á Íslandi hafa þróast og kannski sérstaklega í
    byrjun. Mér skilst að enn þann dag í dag sé mikið um að verið sé að fara
    erlendis í efnaskiptaaðgerðir. Þetta er mjög sérhæfð þjónusta en þróunin
    hefur verið sú að reynt er að gera þessar aðgerðir í meira mæli hér á
    Íslandi. Þá skiptir eftirfylgni líka máli. Það er eitt að fara í aðgerð en
    síðan skiptir eftirfylgnin gríðarlega miklu máli. Það getur beinlínis haft
    mjög alvarlegar afleiðingar í för með sér ef einstaklingar sem fara í
    aðgerð detta úr eftirfylgni og ef ekki er haldið nægilega vel á spöðunum í
    kjölfar aðgerðar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég held að það sé mjög mikilvægt þjóðþrifamál að tekið sé
    heildstætt utan um þennan málaflokk. Tölur hér á Íslandi eru ákveðið
    áhyggjuefni varðandi algengi offitu og sérstaklega meðal barna og svo
    auðvitað ef við horfum til landanna í kringum okkur. Við höfum verið að
    tala um skaðleg efni í þessum þingsal. Við höfum oft talað um fíkniefni og
    það er þannig að sumir sjúkdómar, t.d. lifrarsjúkdómar sem hafa almennt
    verið tengdir við áfengisneyslu — nú hefur sem dæmi fitulifur og
    lifrarskaði af völdum offitu tekið fram úr áfengistengdum lifrarsjúkdómum
    í Bandaríkjunum. Þetta er raunveruleikinn í dag og að mínu mati verður að
    skoða mjög vel markaðsaðstæður og sölu matvara. Hæstv. ráðherra nefndi
    gosdrykki og fleira í þessu samhengi, við sjáum skýra tengingu þar á
    milli. En það er ekki þar með sagt að það sé auðvelt að grípa til aðgerða.
    Það getur verið flókið og getur verið pólitísk áskorun þar sem ýmsar
    hugsjónir eru þar á ferð. Enn og aftur fagna ég því að verið sé að notast
    við gögn og skoða gögn þegar kemur að þessum þáttum og áætluninni í heild.
    Ég ætla að láta staðar numið hér.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>