<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="heilbrrh." frhr="0" id="r2026-09-24T15:41:20" skst="AMöll" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-24 15:44:01 -->

  <ns:umsýsla fundur="11" lgþ="158" tími="2026-09-24T15:41:20">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="a" nr="131">
      <ns:málsheiti>aðgerðaáætlun vegna offitu á Íslandi fyrir árin
      2026--2030</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég vil þakka þingmönnum sem hér hafa tekið til
    máls fyrir góðar undirtektir. Ég skynja að þingmenn skilja mikilvægi þessa
    máls. Tíðni offitu í heiminum hefur þrefaldast, aukist um 300% á liðnum 50
    árum og vandinn vex um 1–2 prósentustig á ári samkvæmt gögnum frá OECD.
    Það hefur engri þjóð tekist að spyrna við fótum og snúa þessari þróun við.
    Ég segi alltaf: Ef við getum það ekki, hver þá, við með okkar vel upplýsta
    samfélag, vel menntaða heilbrigðisstarfsfólk og góðu aðstæður hvað
    lýðheilsu varðar? Eins og ég nefndi í framsögu: Offita styttir ævilengd.
    Hún skapar álag á heilbrigðiskerfið og hún þarfnast svo sannarlega
    samfélagslegra og fjölþættra aðgerða.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég vil taka undir með hv. þm. Rögnu Sigurðardóttur um að við
    þurfum að draga úr fordómum og við þurfum að koma umræðunni upp á æðra
    stig. Mér finnst það vera að þokast í rétta átt og það er ekki síst þess
    vegna sem ég legg þessa áætlun fram sem þingsályktunartillögu. Mér finnst
    vera þörf fyrir umræðu um þetta mikilvæga mál á vettvangi þingsins og ég
    er þess fullviss að það verður gagnleg umræða og rýni í hv.
    velferðarnefnd. Það er líka eðli þingsályktunartillagna að þær eru góð
    leið til að vekja athygli á mikilvægum málum og skapa umræðu í
    samfélaginu. Síðan eru hér aðgerðir sem snúa ekki einungis að
    heilbrigðisráðuneyti heldur öðrum ráðuneytum líka og þá er gagnlegt að
    hafa viljayfirlýsingu þingsins sem getur útvíkkað eignarhald á slíku
    málefni. Ég held ég hafi þetta ekki lengra, sér í lagi þar sem ég er að
    mæla fyrir málinu öðru sinni. Ég hlakka til að fylgjast með vinnu hv.
    velferðarnefndar.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>