<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="heilbrrh." frhr="0" id="r2026-09-24T15:44:29" skst="AMöll" tegflm="R" tegr="F" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-24 15:50:23 -->

  <ns:umsýsla fundur="11" lgþ="158" tími="2026-09-24T15:44:29">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="a" nr="132">
      <ns:málsheiti>landsáætlun vegna sjaldgæfra sjúkdóma fyrir árin
      2027--2031</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir tillögu til þingsályktunar um
    landsáætlun vegna sjaldgæfra sjúkdóma fyrir árin 2027–2031. Þessi tillaga
    byggist á skýrslu starfshóps sem skilaði þáverandi heilbrigðisráðherra
    drögum að landsáætlun um sjaldgæfa sjúkdóma í mars 2024.
    Þingsályktunartillagan var flutt á síðasta þingi en náði ekki fram að
    ganga og er nú endurflutt óbreytt. </ns:mgr>

    <ns:mgr>Sjaldgæfir sjúkdómar eru þeir sjúkdómar sem hafa áhrif á færri en
    fimm af hverjum 10.000 einstaklingum. Það eru til 7.000 ólíkir sjaldgæfir
    sjúkdómar eða öllu heldur þekktir slíkir sjúkdómar og er meiri hluti
    þeirra af erfðafræðilegum orsökum. Það hefur átt sér stað mikilvæg þróun á
    sviði greininga og meðferða á alþjóðavísu en við vitum ekki nákvæmlega
    hversu margir sjaldgæfir sjúkdómar hafa verið greindir hér á landi né
    hversu margir einstaklingar eru með hverja greiningu, þar sem það er ekki
    til nein sameiginleg skráning yfir sjúkdómana og þá einstaklinga sem
    greinast með þá. En þessir sjaldgæfu sjúkdómar hafa víðtæk áhrif á þá sem
    greinast með þá og fjölskyldur þeirra. Greiningin getur verið bæði flókin
    og langdregin en snemmtæk og hröð greining eykur líkur á að
    einstaklingurinn fái viðeigandi meðferð, aðstoð og markvissan stuðning.
    Framfarir í erfðafræðilegum greiningum og lyfjaþróun kalla á aukna
    sérhæfingu á sviði greininga og eflingu sérhæfðra meðferða sem eru
    lykillinn að því að tryggja lífsgæði og lágmarka alvarlega fylgikvilla. Á
    Norðurlöndunum og í löndum innan Evrópusambandsins hafa verið innleiddar
    heildstæðar landsáætlanir í málaflokki sjaldgæfra sjúkdóma en slíkt hefur
    ekki enn verið gert hér á landi. </ns:mgr>

    <ns:mgr>Markmið þessarar landsáætlunar er að bregðast við þessum áskorunum
    og bæta stöðu þeirra sem greinast með sjaldgæfa sjúkdóma til að tryggja að
    þeir fái þjónustu og stuðning við hæfi. Meiri hluti þeirra aðgerða sem
    lagðar eru til í áætluninni rúmast innan ramma núverandi fjárheimilda en
    felur í sér að tiltekin verkefni eru sett í forgang hjá stofnunum á
    málefnasviði heilbrigðisráðherra. Meginkostnaðurinn við framkvæmd þessarar
    áætlunar hlýst af starfrækslu sérstakrar miðlægrar þekkingarmiðstöðvar að
    erlendri fyrirmynd en í dag er þjónusta við einstaklinga með sjaldgæfa
    sjúkdóma á margra höndum. Miðstöð sjaldgæfra sjúkdóma var sett upp innan
    erfða- og sameindalæknisfræðideildar á Landspítala síðla árs 2019 og er
    hlutverk hennar m.a. erfðafræðileg greining og ráðgjöf. Útvíkka þarf
    hlutverk hennar og styrkja svo hægt sé að veita heildræna þjónustu við
    einstaklinga með sjaldgæfa sjúkdóma og aðstandendur þeirra. Á tímabili
    áætlunar er gert ráð fyrir styrkingu núverandi miðstöðvar á Landspítala
    svo að hún geti sinnt þessu hlutverki. Miðstöðin verður styrkt í áföngum
    og er gert ráð fyrir að árlegur kostnaður verði um 186 milljónir þegar
    miðstöðin er fullmönnuð.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Frú forseti. Markmið þessarar tillögu er að stuðla að bættum
    lífsgæðum einstaklinga með sjaldgæfa sjúkdóma. Svo að það markmið náist
    þarf að byggja upp þjónustu sem grundvallast á mannréttindum og
    sjálfsákvörðunarrétti einstaklinga, tryggja samþættingu og samhæfingu
    milli heilbrigðis-, félags- og skólaþjónustu og stuðla að jöfnu aðgengi að
    greiningu, meðferð og stuðningi óháð búsetu og efnahag. Jafnframt er
    mikilvægt að efla alþjóðlegt samstarf, rannsóknir og nýsköpun til að
    tryggja að þjónustan þróist í takt við nýjustu þekkingu og framfarir
    hverju sinni. Það vegur þungt að efla snemmgreiningu og bæta aðgengi að
    sérhæfðri greiningu enda er tímanleg greining forsenda meðferðar og betri
    horfa.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í tillögunni er einnig lögð áhersla á að byggja upp betri
    gagnagrunn og skráningu til að styðja við stefnumótun, gæðamat og
    áframhaldandi þróun þjónustu. Í heild sinni miðar tillagan að því að
    styrkja kerfið þannig að það geti brugðist hraðar og markvissar við þörfum
    einstaklinga með sjaldgæfa sjúkdóma og fjölskyldna þeirra með áherslu á
    gæði og öryggi þjónustunnar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Frú forseti. Ég hef nú farið yfir helstu efnisatriði tillögunnar
    og legg til að henni verði að lokinni fyrri umræðu vísað til hv.
    velferðarnefndar.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>