<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-24T15:54:08" skst="ÓA" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-24 15:55:18 -->

  <ns:umsýsla fundur="11" lgþ="158" tími="2026-09-24T15:54:08">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="a" nr="132">
      <ns:málsheiti>landsáætlun vegna sjaldgæfra sjúkdóma fyrir árin
      2027--2031</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég ætla nú bara að þakka hæstv. ráðherra fyrir skýr
    og góð svör og ætla að taka undir með henni að það sé gríðarlega mikilvægt
    að sá mikli gagnabanki sem við höfum safnað upp hér á Íslandi og varðar,
    leyfi ég mér að segja, heilsu og erfðir þjóðarinnar nýtist og ég vil bara
    hvetja til þess að við horfum svona vítt og breitt fram á veginn. Ég held
    að þetta sé líka kjörið tækifæri fyrir okkur til að laða að okkur
    rannsóknaraðila sem hefðu jafnvel áhuga á að fjármagna hér rannsóknir. Af
    því að ég þekki ágætlega til í lyfjageiranum þá sér maður fyrir sér til
    lengri framtíðar að það verði dálítið meira um einstaklingsmiðaðar
    meðferðir og að þær muni einmitt oft og tíðum taka mið af erfðaþáttum. Við
    eigum örugglega eftir að sjá í framtíðinni lyf sem eru sniðin að
    erfðabreytingum hjá mjög smáum hópum, svo dæmi sé tekið.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>