<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-24T15:57:34" skst="EÁs" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-24 16:06:27 -->

  <ns:umsýsla fundur="11" lgþ="158" tími="2026-09-24T15:57:34">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="a" nr="132">
      <ns:málsheiti>landsáætlun vegna sjaldgæfra sjúkdóma fyrir árin
      2027--2031</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv.
    heilbrigðisráðherra, Ölmu D. Möller, fyrir að leggja fram þessa tillögu
    til þingsályktunar um landsáætlun vegna sjaldgæfra sjúkdóma fyrir árin
    2027–2031. Jafnframt lýsi ég yfir miklum stuðningi við þessa tillögu og þá
    framtíðarsýn sem þar er. Þegar einstaklingur greinist með alvarlegan
    sjúkdóm verða ákveðin kaflaskil í lífinu. Það sem áður var sjálfsagt
    verður það kannski ekki lengur. Framtíðin verður óljósari og spurningarnar
    verða gríðarlega margar. Þegar um sjaldgæfa sjúkdóma er að ræða getur
    óvissan orðið enn meiri. Hvað þýðir þessi greining? Hvað vitum við um
    sjúkdóminn? Hvar er sérþekkinguna að finna? Hvaða meðferð er í boði? Eru
    til lyf? Hvernig verður næsta ár eða næstu tíu ár?</ns:mgr>

    <ns:mgr>Svo eru það börnin. Börn sem veikjast alvarlega án þess að nokkur
    viti í fyrstu hvað er að, börn sem fara í gegnum rannsókn eftir rannsókn á
    meðan foreldrar og fjölskyldur bíða eftir svörum sem stundum láta á sér
    standa. Sum þessara barna eru svo ung að þau geta ekki sagt hvernig þeim
    líður. Þau geta ekki sagt hvar þau finna til, hvað hefur breyst og geta
    ekki lýst einkennum sínum. Þá hvílir enn meiri ábyrgð á foreldrum,
    heilbrigðisstarfsfólki og kerfinu öllu að finna út úr hvað er að. Ég held
    að við getum öll sett okkur að einhverju leyti í spor foreldra eða
    aðstandenda í þeirri stöðu að vita að barninu manns líði ekki vel, að
    eitthvað er að en vita ekki hvað, bíða eftir niðurstöðum, fara á milli
    lækna og rannsókna. Þegar loks kemur greining getur henni fylgt ákveðinn
    léttir. Loksins er komið nafn á það sem fjölskyldan hefur verið að glíma
    við. Um leið getur það líka verið nýtt áfall þegar um alvarlegan eða
    sjaldgæfan sjúkdóm er að ræða. Þá vakna nýjar spurningar. Hvað tekur nú
    við? Er til meðferð? Eru til lyf? Hver þekkir þennan sjúkdóm? Hvernig
    verður líf barnsins? Hvernig á fjölskyldan að takast á við allt það sem
    fram undan er?</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þetta eru margar áskoranir fyrir eina fjölskyldu að bera. Við
    getum ekki tekið þessa óvissu alla í burtu. Við getum ekki lofað því að
    lækning sé alltaf til staðar eða að leiðin verði auðveld. Við getum gert
    miklu betur í því sem samfélagið ræður yfir. Við getum tryggt að fólk
    þurfi ekki sjálft að berjast fyrir því að finna réttu dyrnar að kerfinu,
    að foreldrar og aðstandendur sem eru að takast á við veikindi barns þurfi
    ekki líka að vera sérfræðingar í því að rata um kerfið, að fjölskyldur
    þurfi ekki aftur og aftur að segja sömu sögu, þær fái skýrar upplýsingar,
    stuðning og aðgang að þeirri þekkingu sem til er.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Við getum lagt okkur fram um að búsetan ráði því ekki hvaða
    þjónustu fólk fær. Mér finnst það sérstaklega mikilvægur þáttur í þessari
    tillögu. Þar er skýrt kveðið á um að fólk með sjaldgæfa sjúkdóma eigi að
    hafa jafnt aðgengi að nauðsynlegri þjónustu, hjálpartækjum og sérhæfðum
    lyfjum, óháð efnahag og búsetu. Það skiptir máli. Við vitum að þegar
    sérhæfð þjónusta er annars vegar getur fjarlægðin frá henni verið mikil.
    Það er þó staðreynd að við getum ekki alltaf breytt því og við getum ekki
    alltaf haft alla sérfræðiþjónustu á öllum stöðum á landinu. En það þýðir
    ekki að við eigum að sætta okkur við að búseta fólks ráði úrslitum um það
    hvaða þjónustu það fær. Það getur verið sérstaklega íþyngjandi þegar um
    veikt barn er að ræða. Þá getur ferðalag eftir þjónustu þýtt röskun á
    skólagöngu, vinnu foreldra og daglegu lífi allrar fjölskyldunnar ofan á
    allt hitt sem fjölskyldan er þegar að takast á við. Þess vegna fagna ég
    sérstaklega þeirri áherslu að Miðstöð sjaldgæfra sjúkdóma veiti markvissa
    fjarþjónustu um allt land. Við eigum að nýta tæknina og þekkinguna þannig
    að hún komi til fólks þegar það er hægt.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Aðgengi að lyfjum skiptir einnig miklu máli.
    Þegar um sjaldgæfa sjúkdóma er að ræða getur staðan verið flókin.
    Meðferðir geta verið mjög sérhæfðar, lyf dýr eða aðgengi takmarkað.
    Stundum er meðferð ný og þekkingin jafnvel að þróast hratt á
    alþjóðavettvangi. Þess vegna skiptir máli að í þessari áætlun sé ekki
    aðeins talað um jafnt aðgengi að sérhæfðum lyfjum heldur líka um
    alþjóðlegt samstarf, nýja þekkingu, rannsóknir og nýjar meðferðir. Við
    erum lítið land. Við munum aldrei búa yfir allri sérþekkingu á öllum
    sjaldgæfum sjúkdómum hér heima en smæðin þarf ekki að vera veikleiki ef
    við byggjum upp sterk tengsl við þekkingarmiðstöðvar erlendis og tryggjum
    að íslenskir sjúklingar njóti þeirrar þekkingar sem þar er til staðar. Það
    er lögð rík áhersla á það í tillögunni.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En mér finnst líka mikilvægt að í þessari tillögu er horft á
    fjölskylduna í heild. Þar er gert ráð fyrir að Miðstöð sjaldgæfra sjúkdóma
    styðji fjölskyldur m.a. með sálfræðilegri og félagslegri ráðgjöf. Það kann
    að hljóma eins og lítið atriði þegar rætt er um greiningar, lyf og
    hátæknilæknisfræði en það er það alls ekki því á bak við hverja greiningu
    er manneskja. Þegar barn veikist alvarlega veikist auðvitað ekki öll
    fjölskyldan en veikindin snerta alla fjölskylduna. Foreldrar þurfa að
    halda utan um læknisheimsóknir, rannsóknir, lyf, meðferðir og kostnað en
    um leið þarf hversdagslífið að halda áfram. Það þarf að sinna systkinum,
    vinnu, skóla og heimili. Kerfið okkar, virðulegur forseti, þarf að sjá
    þetta fólk og grípa það.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Það er margt gott í þessari áætlun, áhersla á
    hraðari greiningu, eflingu erfðarannsókna, sterkari Miðstöð sjaldgæfra
    sjúkdóma, fjarþjónustu, stuðning við fjölskyldur, samhæfingu heilbrigðis-,
    félags- og skólaþjónustu og aukið alþjóðlegt samstarf. En það sem mér
    finnst kannski mikilvægast er rauði þráðurinn í gegnum þetta allt saman,
    þ.e. að fólk með sjaldgæfa sjúkdóma og fjölskyldur þeirra eigi ekki að
    þurfa að standa ein.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Sú sem hér talar hefur verið að fylgjast náið með barni og
    fjölskyldu þess í tæp tvö ár frá því að barnið veiktist alvarlega og með
    þeim áskorunum sem fylgja því að greinast með sjaldgæfan sjúkdóm,
    áskorunum sem þau munu takast á við allt lífið. Hvort sem sjúkdómurinn sem
    þú eða barnið þitt greinist með er algengur eða sjaldgæfur þá skiptir máli
    að heilbrigðiskerfið taki utan um ykkur, þið fáið upplýsingar, stuðning og
    bestu þjónustu sem völ er á. Það á ekki að ráðast af því hvar á landinu þú
    býrð eða hversu vel þú eða fjölskylda þín eruð í stakk búin til að berjast
    fyrir þjónustunni. Þess vegna fagna ég þessari landsáætlun. Nú skiptir
    mestu máli að henni verði fylgt eftir í framkvæmd og að þau góðu markmið
    sem hér eru sett fram skili sér alla leið til einstaklinganna og
    fjölskyldnanna sem á þeim þurfa að halda því þegar fólk stendur frammi
    fyrir sjaldgæfum og erfiðum veikindum á það ekki að þurfa að standa frammi
    fyrir kerfinu eitt.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég styð þessa tillögu og hlakka til að sjá hana
    verða að veruleika.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>