<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="heilbrrh." frhr="0" id="r2026-09-24T16:06:37" skst="AMöll" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-24 16:10:02 -->

  <ns:umsýsla fundur="11" lgþ="158" tími="2026-09-24T16:06:37">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="a" nr="132">
      <ns:málsheiti>landsáætlun vegna sjaldgæfra sjúkdóma fyrir árin
      2027--2031</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég vil þakka þingmönnum fyrir góða og
    uppbyggilega umræðu. Ég vil sérstaklega þakka hv. þm. Eydísi
    Ásbjörnsdóttur fyrir góða ræðu og fyrir að nefna vandkvæði sem tengjast
    lyfjum. Það er auðvitað sjálfstætt verkefni að ráðast í erlent samstarf
    bæði til að meta ný lyf sem koma á markaðinn og að afla þeirra og þetta
    tengist auðvitað öðrum málum sem ég legg hér fram.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þessi tillaga um landsáætlun í málefnum sjaldgæfra sjúkdóma
    byggist á framtíðarsýn sem er í nokkrum liðum. Það er í fyrsta lagi
    mannréttindi og sjálfsákvörðunarréttur, að einstaklingar með sjaldgæfa
    sjúkdóma eigi rétt á tímanlegri þjónustu við hæfi sem taki mið af
    sjálfsákvörðunarrétti þeirra. Í öðru lagi verði veitt samhæfð
    heilbrigðis-, félags- og skólaþjónusta, hún verði samþætt og veitt af
    fagfólki sem hefur yfirsýn yfir ólíka þætti í lífi einstaklinga þar sem
    samvinna þjónustuveitenda tryggir þeim hámarkslífsgæði og heilbrigði. Í
    þriðja lagi að það sé jafnt aðgengi að meðferð og stuðningi, að allir sem
    þurfa meðferð, stuðning eða sérhæfð lyf hafi aðgang að nauðsynlegri
    þjónustu, hjálpartækjum og lyfjum, óháð efnahag og búsetu. Og í fjórða
    lagi er áhersla á alþjóðlegt samstarf og nýsköpun, að við tökum þátt í
    samstarfi til stöðugrar framþróunar og þekkingarleitar um sjaldgæfa
    sjúkdóma. Við ætlum að beita nýjustu tækni og aðferðum við bæði greiningu
    og meðferð.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Til þess að ná þessari framtíðarsýn verður lögð áhersla á nokkur
    markmið: Hröð og áreiðanleg greining, jafnt aðgengi að meðferð og
    stuðningi, byggja upp Miðstöð sjaldgæfra sjúkdóma og samhæfa heilbrigðis-,
    félags- og skólaþjónustu auk alþjóðlegs samstarfs eins og áður var rætt.
    Þess vegna tel ég mikilvægt að ræða þetta hér á vettvangi þingsins og
    vekja athygli á þessum mikilvægu málum. Þarna eru jú nefnd verkefni fleiri
    ráðuneyta og þannig getur þingsályktun auðvitað útvíkkað eignarhald á
    slíku málefni. Síðast en ekki síst er samþykkt þingsályktun
    viljayfirlýsing þingsins um að taka betur utan um þau sem hafa sjaldgæfa
    sjúkdóma og eins og ég nefndi eru þau flest í félaginu Einstök börn. Og ég
    ætla að enda á því að segja að einstök börn, þau eiga þetta
    skilið.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>