<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-05T13:35:14" skst="GHaf" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-05 13:37:21 -->

  <ns:umsýsla fundur="12" lgþ="158" tími="2026-10-05T13:35:14">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="61">
      <ns:málsheiti>hækkun kílómetragjalds</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Samfylkingin ætlar ekki að hækka skatta á vinnandi
    fólk; þetta sagði hæstv. forsætisráðherra fyrir síðustu kosningar. Þá átti
    að lækka kostnað heimilanna og taka til í ríkisrekstrinum. Nú leggur
    ríkisstjórn hennar til að kílómetragjaldið hækki um tæplega 16% um næstu
    áramót. Það er meira en sexfalt verðbólgumarkmið Seðlabankans. Í
    greinargerð ríkisstjórnarinnar kemur skýrt fram hvað liggur að baki. Ofan
    á verðlagsuppfærslu á að sækja 4 milljarða kr. til viðbótar með hækkun
    gjaldsins. Þetta er skattahækkun á fólkið í landinu; foreldra sem aka
    börnum sínum í skólann, fólk sem sækir vinnu milli byggðarlaga og alla þá
    sem treysta á bílinn til að koma sér á milli staða á hverjum degi. Þetta
    fólk getur ekki einfaldlega hætt að keyra þótt ríkisstjórnin hækki
    reikninginn. Félag atvinnurekenda hefur sérstaklega varað við því að
    hækkunin auki flutningskostnað og þrýsti vöruverði upp. Álagið lendir
    þannig bæði á heimilum og fyrirtækjum sem eiga að skapa störf og verðmæti.
    Ríkisstjórnin hefur nú boðað að takmarka hækkanir annarra gjalda við 2,5%
    en þó með miklum fyrirvörum. Ekkert liggur samt fyrir um lækkun
    kílómetragjaldsins.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Frú forseti. Það verður að vera samhengi á milli þess sem
    forsætisráðherra lofar fólki og þess sem ríkisstjórnin leggur til. Hvernig
    réttlætir hæstv. forsætisráðherra þá ákvörðun ríkisstjórnarinnar að sækja
    4 milljarða kr. til viðbótar til heimila og fyrirtækja með hækkun
    kílómetragjaldsins þegar hún lofaði að hækka ekki skatta á vinnandi
    fólk?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>