<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-05T13:39:47" skst="GHaf" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-05 13:41:19 -->

  <ns:umsýsla fundur="12" lgþ="158" tími="2026-10-05T13:39:47">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="61">
      <ns:málsheiti>hækkun kílómetragjalds</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir svarið sem þó
    var ekki. Spurningu minni var hreinlega ekki svarað heldur er alltaf farið
    í sama rann. Það er alltaf bent á verk fyrri ríkisstjórnar, alltaf. Og hér
    kemur hæstv. forsætisráðherra og talar um enn eitt samheitið yfir það sem
    ríkisstjórnin notar yfir skattahækkanir.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég vil fá að minna á að árið 2022 skrifaði
    hæstv. ráðherra, þá þingmaður, Jóhann Páll Jóhannsson, í nefndaráliti að
    gjaldahækkanir legðust þyngst á tekjulægri heimili. Í nefndarálitinu
    segir, með leyfi forseta:</ns:mgr>

    <!--https://www.althingi.is/altext/153/s/0790.html-->

    <ns:mgr>„Þannig eru sömu hóparnir og finna sárast fyrir verðbólgunni líka
    látnir bera herkostnaðinn af baráttunni gegn henni.“</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þetta voru rök Samfylkingarinnar þegar hún var í stjórnarandstöðu.
    Nú boðar ríkisstjórn undir hennar forystu tæplega 16% hækkun
    kílómetragjaldsins. Forsætisráðherra lofaði að hækka ekki skatta á
    vinnandi fólk. Nú hækkar ríkisstjórn hennar reikninginn hjá fólki sem þarf
    að komast til vinnu. <ns:bjalla/> Ég spyr því hæstv. forsætisráðherra:
    Hvað hefur breyst frá árinu 2022 sem réttlætir að leggja þessar byrðar á
    tekjulægri heimili <ns:bjalla/> eða giltu þessi sjónarmið
    Samfylkingarinnar aðeins meðan aðrir báru ábyrgð á
    skattahækkununum?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>