<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-05T13:41:28" skst="KFrost" tegflm="F" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-05 13:43:02 -->

  <ns:umsýsla fundur="12" lgþ="158" tími="2026-10-05T13:41:28">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="61">
      <ns:málsheiti>hækkun kílómetragjalds</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Hæstv. forseti. Það stendur til núna, í samráði við
    verkalýðshreyfinguna, að gera breytingar á krónutölugjöldum, flöt gjöld.
    Það er alveg rétt sem hér er sagt og ég fagna því ef þetta er
    viðhorfsbreyting sem er komin upp í Sjálfstæðisflokki, að það eigi
    mögulega frekar að fara í þrepaskiptingu í skattkerfinu en flöt gjöld. Það
    er alveg rétt að sú sem hér stendur vill síður fara í flata skattlagningu.
    Hér er hins vegar um langtímastefnumörkun að ræða sem hófst m.a. í tíð
    síðustu ríkisstjórnar og felur í sér kerfisbreytingu sem upphaflega, eins
    og ég fór yfir í mínu fyrra svari, sneri einmitt að því að færa aukið
    réttlæti í gjaldtöku vegna vegakerfisins þar sem fólk gat í rauninni keypt
    sig út úr kerfinu. Efnað fólk sem gat keypt sér nýjan rafbíl, gat verið á
    sparneytnari bíl, keypti sig að hluta til út úr kerfinu á meðan þeir sem
    voru á notuðum eldri bílum og gátu ekki endurnýjað bílana sína voru fastir
    í olíugjaldskerfinu, olíugjaldinu sem nú er búið að fella niður og allt of
    sjaldan er rætt um í þessu samhengi. Þannig að það var sanngirnismál að
    innleiða þetta á sínum tíma, mál sem hófst í gegnum síðustu ríkisstjórn og
    Samfylkingin studdi í minni hluta sem meiri hluta, ólíkt öðrum sem hér
    sitja sem hreyfast eftir því hvort þeir sitja öðrum megin við borðið.
    Þetta er langtímakerfisbreyting sem er jákvæð. Við erum að færa
    krónutölugjöld almennt niður í 2,5% að öðru óbreyttu, ef samningar halda
    og við sjáum jákvæðar hreyfingar núna í vikunni. En þetta er annað
    mál.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>