<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="forsrh." frhr="0" id="r2026-10-05T13:45:40" skst="KFrost" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-05 13:47:25 -->

  <ns:umsýsla fundur="12" lgþ="158" tími="2026-10-05T13:45:40">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="62">
      <ns:málsheiti>afsögn fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég var að gera mig tilbúna til að svara spurningu um
    bókun 35 en svona geta hlutirnir breyst á innan við tveimur mínútum. Ég
    hef reyndar svarað fyrir þetta mál og á ekkert erfitt með að svara fyrir
    það. Það liggur alveg fyrir — og hv. þingmaður, sem er nú oft undir
    sviðsljósinu þessa dagana í þessum sal, hefur sjálfur sagt að hann hefði
    tekið þá ákvörðun að segja af sér ráðherraembætti. En það vita allir hér
    inni hvernig það virkar með ráðherramál, það sitja allir ráðherrar í
    skjóli þingmeirihluta. Það er ekki einkamál hvers ráðherra eða hvers
    formanns þegar stórar ákvarðanir eru teknar um mannabreytingar, hvort sem
    það á rætur sínar að rekja til heilsufars eða annarra þátta. Það er ekkert
    óeðlilegt við að mál af þessum toga séu rædd meðal formanna ef það kann að
    hafa áhrif á ríkisstjórnarskipanina, þannig að við ræddum þessi mál að
    sjálfsögðu. En í lok dags, eins og ég hef lýst hér yfir, er þetta ákvörðun
    sem er tekin af hv. þingmanni sjálfum eins og hann hefur lýst yfir. Ef
    þetta hefði ekki farið þá leið hefði það auðvitað verið bara formanns
    Flokks fólksins eða Flokks fólksins, ef þau hefðu viljað gera einhverjar
    breytingar eða ef aðrir hlutir hefðu komið upp, rétt eins og ef það hefðu
    verið breytingar í farvatninu í mínu eigin baklandi, að ræða það innan
    þingflokks. En það kom aldrei til þess. Það hefur verið rétt sagt í þessu
    máli.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En ég get líka gjarnan svarað spurningu um bókun 35, enda er það
    ekki erfitt mál að verja hér inni og ég myndi reyndar gjarnan vilja eyða
    meiri tíma í það, frekar en að við séum að ræða hvort það sé óeðlilegt að
    ráðherrar í ríkisstjórn ræði við sína formenn eða formenn ræði saman. Það
    er bara fullkomlega eðlilegt í svona aðstæðum.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>