<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="forsrh." frhr="0" id="r2026-10-05T13:48:38" skst="KFrost" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-05 13:49:52 -->

  <ns:umsýsla fundur="12" lgþ="158" tími="2026-10-05T13:48:38">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="62">
      <ns:málsheiti>afsögn fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Ég þoli ýmislegt í þessum sal en ég þoli ekki þegar
    verið er að klaga upp á mig að ég hafi sagt eitthvað sem er ekki satt. Hér
    er allt ritað upp eftir manni. Við skulum bara hafa það alveg á hreinu að
    það er alveg vitað hvað ég sagði hér áðan. Ég sagði að formenn hefðu rætt
    saman en ekki um hvað. Ég stóð hér í pontu sjálf þegar kom upp
    heilsubrestur á ríkisstjórnarheimilinu þegar viðkomandi þáverandi ráðherra
    þurfti að fara í aðgerð á sínum tíma. Þetta eru erfiðar aðstæður sem koma
    upp. Auðvitað þegar koma upp svona aðstæður á stjórnarheimilinu sest fólk
    saman og ræðir málin, en ekki hvað? Þetta hefur áhrif á stjórnskipan
    landsins, þetta hefur áhrif á hvernig ráðuneytum er sinnt. Það er
    fullkomlega eðlilegt og til marks um heilbrigði í stjórnarsamstarfi að
    formenn ræði saman um hver staðan er. Það breytir því ekki að ég hef sagt
    frá hér inni, þar sem maður segir satt í þessari pontu og eftir manni er
    skrifað, að við ræddum saman um stöðu sem upp var komin og ræddum síðar
    við hv. þingmann um þá stöðu. Í kjölfarið, einhverju seinna, <ns:bjalla/>
    ég er ekki með þá tímalínu skrifaða upp á punkt og prik, þá segir
    viðkomandi af sér á sínum forsendum og hann hefur sjálfur sagt
    það.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>