<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-05T13:50:10" skst="DME" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-05 13:52:07 -->

  <ns:umsýsla fundur="12" lgþ="158" tími="2026-10-05T13:50:10">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="63">
      <ns:málsheiti>aðgerðir einkaaðila</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Undanfarna daga hafa fjölmiðlar fjallað um
    þjáningar fólks á biðlistum eftir bakaðgerðum. Læknar hafa stigið fram og
    lýst því að sjúklingar þeirra búi við verulega skert lífsgæði og gangi um
    mánuðum saman haltrandi. Fólk sem er vant mikilli hreyfingu komist ekki
    lengur sjálft í búðina. Læknar lýsa því hvernig fullorðið fólk hreinlega
    grætur yfir ástandinu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Sjúkratryggingar hafa keypt þessar bakaðgerðir af einkaaðilum í
    kjölfar þess að ljóst varð að Landspítalinn gæti ekki annað eftirspurn,
    m.a. vegna skurðstofuvanda. Markmiðið var að auka getu
    heilbrigðiskerfisins og stytta biðlista. Sjúkratryggingar hafa metið
    þörfina fyrir aðgerðir og Orkuhúsið brugðist við kallinu. Í kjölfar lengri
    samninga við Sjúkratryggingar fjárfesti Orkuhúsið í aðstöðu, búnaði og
    mannafla til þess einmitt að aðstoða ríkið við að mæta þörfum sjúklinga.
    Kvótinn fyrir árið 2026 varð hins vegar mun minni en árið á undan, minni
    en mat Sjúkratrygginga og kláraðist hjá Orkuhúsinu í maí síðastliðnum. Því
    bíður stór hópur sjúklinga eftir aðgerð og kemst hvergi að. Ákvæði í
    samningum meina þeim síðan að gera aðgerðir utan kvótans. Fullkominn
    skurðaðbúnaður er því vannýttur í þessari biðstöðu. Biðlistar eftir þessum
    nauðsynlegu aðgerðum leiða til skertra lífsgæða og starfsgetu, aukinnar
    lyfjanotkunar og aukins álags á aðra heilbrigðisþjónustu. Biðin getur haft
    áhrif á batahorfur og getur jafnvel leitt til varanlegs skaða eða örorku.
    Það er mikilvægt að hæstv. ráðherra svari fyrir þessa stöðu og svari þessu
    sárþjáða fólki sem bíður eftir nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu. Af hverju
    bíður þetta fólk fyrst Orkuhúsið getur tekið við því? Af hverju?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>