<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="heilbrrh." frhr="0" id="r2026-10-05T13:52:16" skst="AMöll" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-05 13:54:28 -->

  <ns:umsýsla fundur="12" lgþ="158" tími="2026-10-05T13:52:16">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="63">
      <ns:málsheiti>aðgerðir einkaaðila</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur fyrir
    spurninguna. Auðvitað er erfitt að hlusta á þessar sögur en staðreyndin er
    sú að þessum aðgerðum hefur verið fjölgað. Áður voru það Sjúkrahúsið á
    Akureyri og Landspítalinn sem gerðu bakaðgerðir en nú hefur verið samið
    ekki bara við Orkuhúsið heldur líka við Klíníkina um þessar tilteknu
    aðgerðir að undangengnu opnu innkaupaferli. Það eru vissulega ákvæði í
    þessum samningum, t.d. um að það eigi að dreifa aðgerðum jafnt yfir árið
    og ekki að taka fram hjá kerfinu. Ef brýn nauðsyn krefur getur
    þjónustuaðili samt sótt um undanþágu til Sjúkratrygginga. Síðan er það
    líka þannig að ef aðgerðakvótinn er búinn á öðrum staðnum þá ætti auðvitað
    að vísa skjólstæðingum á hinn aðilann.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Sjúkratryggingar eru með þessi mál í stöðugri skoðun og við höfum
    rætt það nýverið að það þurfi kannski tvennt til núna. Það er annars vegar
    að koma á miðlægum, samræmdum biðlista fyrir bakaðgerðir. Ég hef margoft
    lýst því í þessum sal hversu mikil innviðaskuld er í heilbrigðiskerfinu.
    Hún er m.a. í rafrænum kerfum og skorti á yfirsýn eins og í þessu
    tilfelli. Síðan þyrftum við að endurtaka þarfagreiningu og meta hvort
    fjölga þurfi aðgerðum en það voru 200 aðgerðir sem var skipt á milli
    Stoðkerfis, sem er Orkuhúsið, og Klíníkurinnar. Þegar þetta var ákveðið
    var m.a. horft til gagna um tíðni aðgerða erlendis en eins og ég segi, það
    getur alltaf þurft að endurmeta.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>