<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-05T13:54:42" skst="DME" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-05 13:56:00 -->

  <ns:umsýsla fundur="12" lgþ="158" tími="2026-10-05T13:54:42">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="63">
      <ns:málsheiti>aðgerðir einkaaðila</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. 200
    aðgerðir er samt minna en mat Sjúkratrygginga Íslands. Við getum þrasað um
    þetta fram og til baka, við getum rætt miðlæga biðlista enn og aftur.
    Staðreyndin er samt sú að sárþjáð fólk bíður eftir því að komast í aðgerð,
    kemst hvergi að og biðin er í boði hæstv. heilbrigðisráðherra sem ber
    ábyrgð á þessu ástandi. Orkuhúsið hefur mannafla, búnað og aðstöðu til að
    skera meira upp. Svo einfalt er það. Það eina sem virðist standa í vegi
    fyrir því að þessir sjúklingar, sem við lesum nú sögur af og eru mjög
    átakanlegar, fái heilbrigðisþjónustu virðast vera fordómar í garð
    einkaframtaksins. Það blasir við. Þetta er ekki fyrsta samtal sem ég á hér
    við hæstv. ráðherra um þetta. Og við skulum athuga að það þurfa ekki allir
    að bíða. Þeir sem geta reitt fram yfir milljón kr. fyrir aðgerð geta keypt
    þessa þjónustu af einkaaðilum, m.a. erlendis. Það er ekkert annað en
    tvöfalt heilbrigðiskerfi og það er líka í boði hæstv. heilbrigðisráðherra.
    Er þetta ásættanlegt? Ætlar hæstv. heilbrigðisráðherra ekki að koma þessu
    fólki til bjargar, ekki með miðlægum biðlistum eða þarfagreiningu heldur
    með einföldum aðgerðum?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>