<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-05T13:57:03" skst="BergÓ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-05 13:59:21 -->

  <ns:umsýsla fundur="12" lgþ="158" tími="2026-10-05T13:57:03">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="64">
      <ns:málsheiti>arðgreiðslustefna Landsvirkjunar</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Forstjóri Landsvirkjunar tilkynnti í síðustu viku að
    hann hygðist stíga frá borði eftir 17 farsæl ár þar við stjórnartaumana.
    Síðan hafa að mörgu leyti vaknað fleiri spurningar með svörum og
    viðbrögðum annaðhvort þeirra sem sitja í stjórn Landsvirkjunar eða
    stjórnmálamanna sem hafa tjáð sig þar um. Það vakti athygli mína þegar ég
    fór að skoða málið, í ljósi þess að ýmsir hafa áhyggjur af því að
    ríkisstjórnin sjái fyrir sér að fara orkuveituleið Reykjavíkurborgar og
    auka umtalsvert arðgreiðslur Landsvirkjunar til að rétta af fjárhag hins
    opinbera, að 21. apríl sl. virðist vera lykildagur í lífi Landsvirkjunar
    nú um stundir. Á þeim degi var gerð á aðalfundi tillaga um 165 milljón
    dollara arðgreiðslu, sem er vel á þriðja tug milljarða, og á sama degi
    samþykkti stjórn Landsvirkjunar nýja arðgreiðslustefnu sem virtist þrengja
    töluvert að svigrúmi til arðgreiðslna fyrirtækisins inn í
    ríkissjóð.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mig langar í því samhengi að spyrja hæstv. ráðherra hvort hann
    hafi fengið einhverjar skýringar á því hvers vegna þetta kemur fram í
    tillögu, er samþykkt í stjórn strax í febrúar, þessi 165 milljón dollara
    arðgreiðsluákvörðun, og 3. mars er hún tekin fyrir á ársfundi aftur en
    staðfest þarna á aðalfundi. Hvað skýrir það að mati hæstv. forseta að
    stjórnin geri tillögu um hátt í 20% hærri arð heldur en arðgreiðslureglur
    sem voru samþykktar þennan sama dag kveða á um? Það er eitthvað sem kallar
    á skýringar þarna og ég vona að hæstv. ráðherra treysti sér til að útskýra
    hvernig á því stendur að arðgreiðslukrafan sé hátt í 20% hærri en
    arðgreiðslustefna sem var samþykkt þennan sama dag kveður á um.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>