<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-05T14:01:09" skst="BergÓ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-05 14:02:00 -->

  <ns:umsýsla fundur="12" lgþ="158" tími="2026-10-05T14:01:09">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="64">
      <ns:málsheiti>arðgreiðslustefna Landsvirkjunar</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Auðvitað hlýtur að
    vekja undrun að stjórn klári ákvörðun sem gengur lengra í arðgreiðslum en
    tillaga sem sama stjórn samþykkir sama daginn. En það segir hér, með leyfi
    forseta, í arðgreiðslustefnunni:</ns:mgr>

    <!--https://www.landsvirkjun.is/api/get-pdf?id=aftSecBOoF08xrzK_260421Ar%C3%B0grei%C3%B0slustefna-STE-092-undirritu%C3%B0.pdf&name=260421%20Ar%C3%B0grei%C3%B0slustefna%20-%20STE-092%20-%20undirritu%C3%B0.pdf-->

    <ns:mgr>„Arðgreiðslustefna Landsvirkjunar er sett af stjórn fyrirtækisins
    að fenginni tillögu frá forstjóra.“</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra út í setningu sem er sérstök
    í 4. gr., þar sem segir, þegar búið er að útskýra með hvaða hætti þetta
    skuli reiknað:</ns:mgr>

    <ns:mgr>„Stjórn getur vikið frá stefnunni ef hún metur aðstæður með þeim
    hætti.“</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra hvort hann viti til þess að
    sú setning hafi verið inni í þeirri tillögu sem forstjóri gerði til
    stjórnar fyrirtækisins um þessar reglur þegar sú vinna var í
    gangi.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>