<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fjmrh." frhr="0" id="r2026-10-05T14:02:06" skst="DMK" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-05 14:02:52 -->

  <ns:umsýsla fundur="12" lgþ="158" tími="2026-10-05T14:02:06">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="64">
      <ns:málsheiti>arðgreiðslustefna Landsvirkjunar</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir síðari
    spurninguna. Sambærileg setning hefur að vísu verið í arðgreiðslustefnu
    Landsvirkjunar og þar hefur hún verið túlkuð með þeim hætti að
    arðgreiðslustefnan sé hámarksarðgreiðslustefna. Sú stefnubreyting sem á
    sér stað núna er að arðgreiðslustefnan er meira almennt viðmið. Frávikin
    sem myndu eiga sér stað myndu alltaf eiga sér stað á grundvelli þess, t.d.
    eins og fjárfestingarplön fyrirtækisins gerðu ráð fyrir meiri
    fjárfestingum og þar af leiðandi minni arðgreiðslum en stjórn telur
    heppilegt og arðgreiðslustefnan segir til um.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>