<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="forsrh." frhr="0" id="r2026-10-05T14:05:26" skst="KFrost" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-05 14:07:41 -->

  <ns:umsýsla fundur="12" lgþ="158" tími="2026-10-05T14:05:26">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="65">
      <ns:málsheiti>niðurfelling vaxtabóta og staða tekjulágra</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina, ýmislegt
    sem væri hægt að taka fyrir hérna. Hér er verið að vitna í fyrri
    kjarapakka Samfylkingarinnar frá 2022 og 2023 þar sem reyndar allar okkar
    tillögur voru fullfjármagnaðar upp á punkt og prik og reyndar var seinni
    tillögupakkinn, þegar kom að sparnaðartillögum, með 4 kr. að auki miðað
    við útgjöld. Það er auðvitað inntakið í því sem við erum að gera núna í
    rekstri ríkissjóðs eftir mörg hundruð milljarða kr. hallarekstur
    undanfarinna ára, þ.e. að loka þessu gati, vegna þess að þrátt fyrir að
    já, verðbólga sé of há núna, í tæplega 6%, og þrátt fyrir að vextir séu
    já, of háir, í 8%, þá gengum við í gegnum tímabil á síðasta kjörtímabili
    þar sem verðbólgan var 10% á sama tíma og við vorum að ræða umræddar
    tillögur. Verðbólgan var 10% og vextir um 9%. Það er þrátt fyrir allt
    skárri staða en þá var. Við höfum lagt á okkur að reyna eftir mesta megni
    að draga úr þenslunni í íslensku samfélagi sem skapast hefur á undanförnum
    árum með þessum yfirgengilega hallarekstri til að minnka pressuna sem
    kemur frá ríkinu. Það er að virka. Það er undirliggjandi verðbólga sem
    hefur tekið að hjaðna en við erum auðvitað að lenda líka í ákveðnum
    vandræðum varðandi olíuverðshækkanir.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hvað varðar vaxtabótakerfið get ég sagt að mér hefur reyndar þótt
    miður hvernig þróunin var í því kerfi í langan tíma. Þegar við tókum við
    voru 800 millj. kr. eftir í því kerfi. Síðasta ríkisstjórn drap
    vaxtabótakerfið. Það var margir, margir milljarðar, tugmilljarðar á sínum
    tíma. Síðasta ríkisstjórn gekk endanlega frá því kerfi. Það var tekin sú
    ákvörðun, í staðinn fyrir að greiða út þær 800 millj. kr. sem eftir voru,
    að beina þeim í önnur úrræði. Við höfum t.d. tekið að okkur að reyna að
    stórefla hlutdeildarlánakerfi sem ég veit að síðasta ríkisstjórn kom á, en
    við höfum bætt betur í þar og reynt að koma þessu í betri farveg vegna
    þess að það er mikið verk að ætla að endurreisa eitthvað <ns:bjalla/> sem
    er tekið fullkomlega í sundur á einum stað. En það að stöðva
    hallareksturinn er eitthvað sem við sjáum sem besta einstaka tólið akkúrat
    núna til að taka á þessu.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>