<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-05T14:07:47" skst="IIsak" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-05 14:09:16 -->

  <ns:umsýsla fundur="12" lgþ="158" tími="2026-10-05T14:07:47">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="65">
      <ns:málsheiti>niðurfelling vaxtabóta og staða tekjulágra</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir svarið en
    hæstv. forsætisráðherra svaraði samt sem áður ekki spurningunni. Hvað
    hefur breyst? Hér er verið að tala um að loka gatinu en fjölskyldurnar í
    landinu eru að fá reikninginn. Ég velti fyrir mér hvort það sé hreinlega
    ábyrgt að fella niður vaxtabótakerfið án þess að eitthvað annað taki við í
    staðinn. </ns:mgr>

    <ns:mgr>Í þessu ljósi langar mig að ræða heildaráhrif frumvarpsins á
    fólkið í landinu vegna þess að við í Framsókn höfum unnið að greiningu og
    metið samanlögð kostnaðaráhrif frumvarpsins á ólíkar fjölskyldur, bæði
    bein og óbein áhrif, sem sagt hvað hækkanir og ýmsar breytingar þýða í
    krónum fyrir heimilin. Hér má nefna krónutöluhækkanir, ýmis gjöld, skertar
    bætur og möguleg áhrif bankaskatts á lánskjör og verðbólguáhrif aðgerðanna
    á húsnæðislán. Okkar mat er að viðbótarkostnaður frumvarpsins nemi langt
    yfir 300.000 kr. á hefðbundnar fjölskyldur í landinu <ns:bjalla/> þótt
    áhrifin geti vissulega verið misjöfn. Ég vil spyrja hæstv.
    forsætisráðherra hvort ríkisstjórnin og hæstv. ráðherra hafi lagt mat á,
    greint eða óskað eftir greiningu á heildaráhrifum þessara aðgerða
    <ns:bjalla/> sem verið er að leggja til í frumvarpinu á heimilin í
    landinu.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>